14.6.2006 Jónatan Bow og Patrick Releford kljást í leik Hauka og UMFN í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ 1989.
|
13.6.2006 Frá 40 ára afmælishófi KKÍ 25. febrúar 2001. Frá vinstri Marinó Sveinsson; Einar Matthíasson og Gauti Grétarsson.
|
12.6.2006 Frá lokahófi KKÍ í gamla Broadway í Mjódd. Jón Sigurðsson og Einar Bollason.
|
9.6.2006 Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993. A-landslið karla, yfirburðasigurvegarar mótsins.
|
8.6.2006 Frá lokahófi KKÍ 1988 í gamla Broadway í Mjódd. Guðmundur Þorsteinsson úr stjórn KKÍ afhendir Pálmari Sigurðssyni viðurkenningu sem besta leikmanni Íslandsmótsins.
|
7.6.2006 Leifur Garðarsson FIBA dómari að koma út úr íþróttahúsi á Kýpur, þar sem hann var að dæma í Promotion Cup kvenna í desember 1993.
|
6.6.2006 Frá 40 ára afmælishófi KKÍ 24. febrúar 2001. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ávarpar veislugesti.
|
5.6.2006 Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993. Valur Ingimundarson í leik gegn Möltu.
|
2.6.2006 Frá meistarakeppni KKÍ – góðgerðarleiknum – í Njarðvík í september 1999.
|
1.6.2006 Leikmenn í úrslitaleik KR og Keflavíkur í bikarkeppni kvenna árið 2001 heiðra framkvæmdastjóra KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson, á fertugsafmælisdegi hans 24. febrúar 2001.
|
31.5.2006 Guðrún Gunnarsdóttir ÍR reynir körfuskot í leik ÍS og ÍR í 1. deild kvenna líklega árið 1984.
|
30.5.2006 KR-ingurinn Omari Westley spilar vörn gegn Njarðvíkingnum Jeb Ivey í deildarleik þann 19. janúar 2006.
|
29.5.2006 Frá Evrópukeppni U-20 landsliða í Evora í Portúgal árið 1993. Ingvar Ormarsson og Eggert Garðarsson (Maríuson) taka léttan sjómann á sundlaugarbakkanum.
|
26.5.2006 Sólveig Pálsdóttir blæs í flautu sína og Stefán Friðleisson leikmaður UÍA grípur um andlitið.
|
25.5.2006 Strákar úr Stjörnunni í Garðabæ í æfingabúðum á Laugarvatni sumarið 1997, ásamt þjálfara sínum Birni Leóssyni.
|