KKÍ býður þér upp á margvíslegar tölfræðilegar upplýsingar um alla leikmenn sem leikið hafa í úrvalsdeildinni frá því
henni var komið á fót veturinn 1978-1979.
Skoðið heildarárangur leikmanna á einstökum leiktímabilum. Þessu er hægt að raða eftir öllum helstu tölfræðiþáttum.
Hægt er að raða eftir besta meðaltali á tímabili.
Skoðið besta árangur leikmanna í einstökum leikjum. Þessu er hægt að raða eftir öllum helstu tölfræðiþáttum.
Skoðið heildartölur ferilsins hjá einstökum leikmönnum. Aðeins er um að ræða eina línu fyrir hvern leikmann þar sem
samanlögð tölfræði ferilsins birtist. Þessu er hægt að raða eftir helstu tölfræðiþáttum og einnig er hægt að sjá meðaltöl.
Hér er heildarferill leikmanna birtur, tímabil fyrir tímabil. Hér er boðið upp á þrjú sjónarhorn á feril leikmanns:
1) Heildartölur á hverju tímabili fyrir sig.
2) Meðaltöl á hverju tímabili fyrir sig.
3) Besti árangur leikmanns í einum leik í helstu tölfræðiþáttum.
Skoðið efstu menn í stökum tölfræðiþáttum hjá hverju félagi fyrir sig.
Yfirlit yfir leiki sem eru á dagskrá á hverjum degi. Á þessu yfirliti birtast úrslit leikja ásamt útdrætti úr tölfræði þeirra.
Lágmörk fyrir tölfræðiþætti KKÍ
12 liða úrvalsdeild karla með 22 leikjum
Lágmark á alla lista eru 17 leikir eða
Stig að meðaltali (15 í leik) 330 stig
Fráköst að meðaltali (8) 175 fráköst
Stoðsendingar að meðaltali (3) 66 stoðsendingar
Stolnir boltar að meðaltali (2) 44 stolnir boltar
Varin skot að meðaltali (1) 22 varin skot
Besta 3ja stiga skotnýting (1) 22 3ja stiga körfur
Besta vítanýting (1,35) 30 víti nýtt
Besta skotnýting (3) 66 skot nýtt
8 liða úrvalsdeild kvenna með 28 leikjum
Lágmark á alla lista eru 21 leikir eða
Stig að meðaltali (12,5 í leik) 350 stig
Fráköst að meðaltali (8) 224 fráköst
Stoðsendingar að meðaltali (3) 84 stoðsendingar
Stolnir boltar að meðaltali (2,5) 70 stolnir boltar
Varin skot að meðaltali (1) 28 varin skot
Besta 3ja stiga skotnýting (0,6) 17 3ja stiga körfur
Besta vítanýting (1,35) 38 víti nýtt
Besta skotnýting (2) 56 skot nýtt