18.7.2007 Ingi Gunnarsson og Birgir Örn Birgis í Kaupmannahöfn í landsliðsferð 1961.
|
17.7.2007 Brynjar Þór Björnsson við það að jafna leikinn við lok venjulegs leiktíma í oddaleik KR og Snæfells í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar 2007. Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson koma engum vörnum við.
|
16.7.2007 Ingi Gunnarsson leikmaður og fyrirliði ÍKF var snjall bakvörður
|
13.7.2007 Jón Eysteinsson (13) og Hrafn G. Johnsen (4) eigast hér við í Þórismótinu á Laugarvatni 1957. Tveimur árum síðar urðu þeir Íslandsmeistarar saman með ÍS og sátu einnig lengi saman í aganefnd KKÍ
|
12.7.2007 Emilía Sigurðardóttir
|
11.7.2007 Hafsteinn Þór Stefánsson leikmaður ÍS með knöttinn í leik gegn ÍR. Það er Hólmsteinn Sigurðsson seinna formaður KKÍ sem sækir að honum.
|
10.7.2007 Ægir Þór Steinarsson var valinn besti leikmaður Norðurlandamótsins 2007. Hér fagnar hann eftir úrslitaleikinn.
|
9.7.2007 Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur og Benedikt Guðmundsson þjálfari KR í viðtali fyrir fjórða leik KR og Njarðvíkur í úrslitum Íslandsmótsins 2007.
|
6.7.2007 Íslandsmeistarar KR vorið 1979. Aftari röð frá vinstri: Sveinn Jónsson formaður KR, Þröstur Guðmundsson, John Hudson, Garðar Jóhannsson, Birgir Guðbjörnsson, Einar Bollason og Gunnar Gunnarsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Eiríkur Jóhansson, Árni Guðmundsson, Jón Sigurðsson og Gunnar Jóakimsson. „Lukkutröllið" fremst er Helgi Helgason Ágústssonar. Drengirnir tveir lengst til vinstri eru Björgvin Kristinsson Stefánssonar og Andri Sveinsson Jónssonar. Telpurnar þrjár lengst til hægri eru allar dætur Einars Bollasonar og heita Bryndís, Hjördís og Sólveig Lilja.
|
5.7.2007 Flosi Sigurðsson barnungur með körfubolta. Hann er sonur Sigurður „stóra" Helgasonar sem lék með KFR og Val.
|
4.7.2007 Björn M. Björgvinsson, Guðrún Ólafdóttir og Guðmundur Þorsteinsson.
|
3.7.2007 Bikarmeistarar Fram 1982. Aftari röð frá vinstri: Bjarni P. Magnússon formaður körfuknattleiksdeildar, Hörður Arnarson, Guðmundur Ómar Þráinsson, Þórir Einarsson, Símon Ólafsson, Björn Magnússon, Þorvaldur Geirsson og Kolbeinn Kristinsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Þorkell Andrésson, Viðar Þorkelsson, Val Bracy, Lárus Thorlacius og Guðsteinn Ingimarsson.
|
2.7.2007 Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
|
29.6.2007 Lið Hauka sem sigraði í 2. deildinni vorið 1981. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Brynjólfsson formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, Höskuldur Björnsson, Ólafur Rafnsson, Kári Eiríksson, Kristján Arason, Eyþór Árnason, Þorteinn Aðalsteinsson, Sverrir Hjörleifsson, Birgir Örn Birgis þjálfari og Sigurbergur Steinsson stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson, Sveinn Sigurbergsson, Hálfdan Markússon, Guðjón Þórðarson, Ingvar S. Jónsson og Einar Örn Birgisson sonur þjálfarans.
|
28.6.2007 Helgi Jóhannsson leikmaður ÍR var frægur fyrir húkkskot sín
|