© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
8.4.2002 | Óskar Ó. Jónsson
Tölurnar sem skiptu máli í þriðja leik ÍS og KR
KR tryggði sér fjórða leikinn á heimavelli gegn ÍS með 51-54 sigri í þriðja leik liðanna í lokaúrslitum kvenna en leikurinn fór fram í Kennaraháskólanum. Hér á eftir fara tölurnar sem skiptu mestu máli í leiknum.

15/2 Meadow Overstreet hitti aðeins úr 2 af 15 skotum sínum og gerði bara níu stig í leiknum en hún hafði hitt úr 48,6% skota sinn og gert 28 stig að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. Meadow klikkaði á fimm fyrstu þriggja stiga skotum sínum og setti að lokum aðeins eina niður af sjö en í fyrstu tveimur leikjunum höfðu 9 af 17 þriggja skotum hennar farið niður eða 53%.

6 Helga Þorvaldsdóttir var með fimm stoðsendingar í fyrsta leikhluta og kom að öllum sex körfum KR-liðsins fyrstu tíu mínúturnar. Helga kom KR í 0-3 með þriggja stiga körfu og lagði síðan um næstu fimm körfur KR-liðsins.

35 Hildur Sigurðardóttir, KR tók yfir tíu fráköst þriðja leikinn í röð og hefur nú níu frákasta forskot á næsta mann á listanum yfir þær sem hafa tekið flest fráköst í einvíginu. Hildur hefur tekið alls 35 fráköst, eða 11,7 að meðaltali í leik en ellefu af fráköstunum hefur Hildur tekið í sókn.

9 KR-vörnin gætti þeirra Meadow Overstreet og Öldu Leif Jónsdóttur hjá ÍS alveg sérstaklega vel í fyrri hálfleik þar sem þær gerðu aðeins níu stig saman og misnotuðu fimm af sjö skotum. Overstreet og Alda höfðu gert alls 44 stig í fyrri hálfleikjum fyrstu tveggja leikjanna, Overstreet 29 og Alda Leif 15.

5/4 KR-liðið nýtti fjögur af fyrstu fimm skotum sínum í leiknum og var komið í 10-4 eftir 4:29 og það þrátt fyrir að hafa á sama tíma tapað fórum boltum. KR-liðið hitti úr tveimur fyrstu þriggja stiga skotum sínum í leiknum.

5 Alda Leif Jónsdóttir hjá ÍS jafnaði metið yfir flest varin skot í lokaúrslitum kvenna með því að verja fimm slík en Alda Leif varði öll skotin eftir hlé. Alda Leif á nú metið með þeim Önnu Maríu Sveinsdóttur (með Keflavík gegn KR 8/4/2000) og Erlu Þorsteinsdóttur (með Keflavík gegn KR 31/3/2001). Alda Leif hefur varið tíu skot í þremur leikjum einvígisins eða jafnmikið og allt KR-liðið til samans.

11. Stúdínur biðu þarna sinn fyrsta ósigur í tíu leikjum en liðið hafði unnið sex deildarleiki og fjóra leiki í úrslitakeppninni í röð. Síðasta tap ÍS fyrir þennan leik var 2. febrúar þegar liðið tapaði 68-37 fyrir KR í KR-húsinu.

42-39 Stúdínur unnu í fyrsta sinn fráköstin í einvíginu en ´ÆIS tók 42 gegn 39 fráköstum KR og átti í fyrsta sinn frákastahæsta leikmann leiksins en Lovísa Guðmundsdóttir tók 16 fráköst í leiknum.

+6 Lovísa Guðmundsdóttir tók sex fleiri fráköst í þessum leik en í hinum tveimur til samans og það þótt þær báðir voru framlengdir. Lovísa tók fimm fráköst í fyrsta leikhluta og var komin með átta fráköst í hálfleik.

16% KR-liðið nýtti aðeins 16% skota sinn í seinni hálfleik og fékk átta af 20 stigum sínum í hálfleiknum af vítalínunni. Stúdínur vörðu sjö skot í seinni hálfleik og KR misnotaði þar öll fjögur þriggja stiga skotin sín.




Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, sæmir Ólaf Rafnsson, forseta ÍSÍ og fyrrverandi formann KKÍ, gullmerki Körfuknattleikssambands Íslands á ársþingi sambandsins vorið 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið