© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
30.12.2006 | Kristinn Óskarsson
Óíþróttamannsleg villa
Um þessa tegund persónuvillna hefur lengi staðið nokkur styrr. Hér áður fyrr hét hún “ásetningsvilla” og er enn kölluð það meðal gamalla hunda, en það ætti í raun alls ekki að gera. Í dag skiptir ásetningurinn (ætlun leikmannsins) engu máli. Dómarar eiga bara að meta atvikið en ekki ætlunina.

Óíþróttamannsleg villa er þegar leikmaður reynir ekki að leika knettinum innan ætlunar og anda leiksins. Dómarar leggja tvennt til grundvallar þegar þeir meta hvort um óíþróttamannslega villu hafi verið að ræða:

-Ef leikmaður gerir ekki tilraun til að leika knettinum og veldur við það snertingu skal sú snerting talin óíþróttamannsleg villa (hversu mikil snerting er skiptir ekki máli).
-Ef leikmaður reynir að leika knettinum en veldur við það harðri snertingu skal sú snerting talin óíþróttamannslegri villa.

Að sjálfsögðu þarf dómari að hafa skilning á eðli, anda og tilgangi leiksins, hagræði og óhagræði til að verða góður í að meta þessar aðstæður allar.

Dómaranefnd hefur ítrekað þann anda leiksins að ofbeldi sé undir engum kringumstæðum réttlætanlegt og leikmenn sem verða uppvísir að slíku skuli undantekningalaust vísað af velli með brottrekstrarvillu.

Að auki langar mig til að vekja athygli á tveggja ára gamalli breytingu á leikreglum þar sem segir að fái leikmaður dæmdar á sig tvær óíþróttamannslegar villur í sama leiknum skal honum vikið af leikvelli.

Í reglugerð um aganefnd kemur m.a. fram að sé leikmanni vísað af leikvelli vegna tveggja óíþróttamannslegra villna, skal viðkomandi ekki úrskurðaður í leikbann ef um er að ræða fyrstu brottvísun leikmannsins á tímabilinu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá störfum allsherjarnefndar á ársþingi KKÍ í Borgarnesi árið 1992, undir stjórn þeirra Ingvars Kristinssonar og Gísla Georgssonar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið