© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
28.3.2008 | Halldór Halldórsson
Mál nr. 2x2008
Ár 2008, föstudaginn 28. mars er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 2/2008
Ungmennafélagið Skallagrímur
gegn
Hamri

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

DÓMUR
I
Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 26. febrúar sl. og gögn málsins send formanni dómsins með tölvupósti sama dag. Kærandi er körfuknattleiksdeild Ungmennafélagsins Skallagríms Borgarnesi.
Kærði er körfuknattleiksdeild Hamars, Heiðmörk 57, Hveragerði.
Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta meðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Dómkröfur
Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik milli B liða aðila máls þessa sem fram fór 19. febrúar í Hveragerði.
Kærði gerir ekki kröfur í málinu.
Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. 2 útprentun úr gagnagrunni KKÍ um leikjafjölda leikmanna kærða með A liði kærða. Nr. 3 skýrsla leiksins.
II
Dómari málsins hlutaðist til um að starfsmenn skrifstofu KKÍ gæfu kærða frest til að til að tjá sig um málið og hefur hann að sögn starfsmanns KKÍ símleiðis fallist á að lið hans hafi gerst brotlegt eins og fram kemur í kæru.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið Lárus Jónsson en kærða hafi verið óheimilt að nota þennan leikmenn í umræddum leik þar sem hann hafi á þessum tíma verið meðal sjö leikjahæstu leikmanna kærða og raunar hafi hann leikið flestar mínútur allra með A-liði kærða í Iceland Express deildinni. Í þessu sambandi vísar kærði til 22. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót. Telur kærandi að lið kærða hafi því verið ólöglega skipað í leiknum.
III
Niðurstaða
Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæði 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Í nefndri 22. gr. um körfuknattleiksmót kemur fram að þegar félag sendir B-lið til keppni þá sé því óheimilt að nota sjö leikjahæstu leikmenn A-liðs hverju sinni. Jafnframt segir í greininni að þegar tveir eða fleiri leikmenn séu jafnir í sjöunda sæti sé óheimilt að nota einn þeirra með B- liði Þá er tekið fram í greininni að þegar miðað er við sjö leikjahæstu leikmenn A-liðs skuli miðað við spilaðar mínútur að meðaltali í leik samkvæmt tölfræði KKÍ á yfirstandandi tímabili. Í málinu hefur verið lögð fram útprentun af tölfræðivef KKÍ um leikjafjölda leikmanna kærða með A-liði hans í Icelandexpressdeild karla. Þar má sjá að á þeim tíma sem leikurinn fór fram var nefndur Lárus Jónsson meðal leikjahæstu leikmanna kærða og þá hafði hann leikið flestar mínútur allra leikmanna kærða í Iceland Express deildinni. Samkvæmt þessu var Lárusi Jónssyni, með vísan til nefndrar 22. gr, óheimilt að leika umræddan leik og ber þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst kærði því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0.
Með hliðsjón af því og málavöxtum öllum þykir ekki ástæða til að dæma kærða til greiðslu sektar til KKÍ. Það athugast að málatilbúnaður kæranda var ekki í samræmi við lög um dómstóla KKÍ en þrátt fyrir það þótti ekki eins og hér stendur á ástæða til að vísa málinu frá dómi.
Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan. Dómsuppsaga hefur dregist vegna anna dómarans.


DÓMSORÐ
Hamar telst hafa tapað leik gegn Skallagrími II. deild karla sem fram fór 19. febrúar 2008 með stigatölunni 0-20.


Halldór Halldórsson.


Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.





Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla á mót á Möltu í desember 1986.  Einar Bollason þjálfari, Ívar Webster og Gylfi Þorkelsson í einni af hinum frægu gömlu rútum á Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið