© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
17.1.2008 | Halldór Halldórsson
Mál nr. 6x2007
Ár 2008, miðvikudaginn 15. janúar er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 6/2007
Haukar
gegn
Ungmennafélagi Grindavíkur

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

DÓMUR
I
Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 19. desember. og gögn málsins send formanni dómsins með tölvupósti sama dag. Kærandi er körfuknattleiksdeild Hauka. Ásvöllum, Hafnarfirði.
Kærði er körfuknattleiksdeild Ungmennafélags Grindavíkur, Grindavík.
Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta meðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Dómkröfur
Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik milli aðila máls þessa í II. deild karla, B-riðli, sem fram fór 15. desember sl.
Kærði gerir ekki kröfur í málinu.
Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. útprentun úr gagnagrunni KKÍ um leikjafjölda leikmanna kærða með A liði kærða. Nr. 3 skýrsla leiksins.
II
Dómari málsins hlutaðist til um að starfsmenn skrifstofu KKÍ gæfu kærða frest til að til að tjá sig um málið en það hefur hann ekki gert.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið Björn Steinar Brynjólfsson. Kærða hafi verið óheimilt að nota þennan leikmenn í umræddum leik þar sem hann hafi á þessum tíma verið meðal sjö leikjahæstu og þá hafi hann verið í hópi þeirra sjö leikmanna kærða sem leikið hafði flestar mínútur með A-liði kærða í Icelandexpressdeildinni. Í þessu sambandi vísar kærði til 22. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót Telur kærandi að lið kærða hafi því verið ólöglega skipað í leiknum.
III
Niðurstaða
Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæð 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Í nefndri 22. gr. um körfuknattleiksmót kemur fram að þegar félag sendir B-lið til keppni þá sé því óheimilt að nota sjö leikjahæstu leikmenn A-liðs hverju sinni. Jafnframt segir í greininni að þegar tveir eða fleiri leikmenn séu jafnir í sjöunda sæti sé óheimilt að nota einn þeirra með B- liði Þá er tekið fram í greininni að þegar miðað er við sjö leikjahæstu leikmenn A-liðs skuli miðað við spilaðar mínútur að meðaltali í leik samkvæmt tölfræði KKÍ á yfirstandandi tímabili. Í málinu hefur verið lögð fram útprentun af tölfræðivef leikjafjölda leikmanna kærða með A-liði hans í Icelandexpressdeild karla. Þar má sjá að á þeim tíma sem leikurinn fór fram höfðu tíu leikmenn leikið níu leiki með A-liði kærða í efstu deild og var nefndur Björn Steinar þar á meðal. Í framlagðri útprentun kemur einnig fram að af þeim leikmönnum kærða sem leikið höfðu níu leiki var Björn Steinar í sjöunda sæti miðað við leiknar mínútur að meðaltali í leik. Samkvæmt þessu var Birni Steinari, með vísan til nefndrar 22. gr, óheimilt að leika umræddan leik og ber þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst kærði því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0.
Með hliðsjón af því og málavöxtum öllum þykir ekki ástæða til að dæma kærða til greiðslu sektar til KKÍ.
Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan. Dómsuppsaga hefur dregist vegna veikinda dómarans.

DÓMSORÐ
Ungmennafélagið Grindavík telst hafa tapað leik gegn Haukum Bí II. deild karla, B-riðli, sem fram fór 15. desember 2007 með stigatölunni 0-20.

Halldór Halldórsson.

Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Rúnar Birgir Gíslason dómari á leið í dómarakast í úrslitaleik á Scania Cup á páskadag 2001
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið