© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
2.2.2007 | Halldór Halldórsson
Mál nr. 1x2007

Ár 2007, föstudaginn2. febrúar er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 1/2007
ÍBV körfuknattleiksfélag
gegn
Ungmennafélaginu Drangi

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

DÓMUR
I
Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 22. janúar sl. og gögn málsins send formanni dómsins með símbréfi sama dag. Kærandi er ÍBV körfuknattleiksfélag Smáragötu 18, Vestmannaeyjum.
Kærði er Ungmennafélagið Drangur körfuknattleiksdeild, Vík, Mýrdal.
Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta meðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Dómkröfur
Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik milli aðila máls þessa í II. deild karla, riðli A-5, sem fram fór 20. janúar sl.
Kærði gerir ekki kröfur í málinu.
Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. útprentun úr gagnagrunni KKÍ um leik Hamars/Selfoss gegn Þór Þorlákshöfn. Nr. 3 skýrsla leiks aðila Nr. Útprentun af heimasíðu KKÍ um félagskipti.
II
Dómari málsins hlutaðist til um að starfsmenn skrifstofu KKÍ gæfu kærða frest til að til að tjá sig um málið en það hefur hann ekki gert.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið Björn Ægir Hjörleifsson en hann hafi á þeim tíma sem leikurinn fór fram verið skráður í Þór, Þorlákshöfn og því hafi hann ekki verið með leikheimild með kærða á þessum tíma. Telur kærandi að lið kærða hafi því verið ólöglega skipað í leiknum.
III
Niðurstaða
Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæð 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Fyrir liggur að nefndur leikmaður skipti hinn 28. september 2006 úr Drangi yfir í Þór, Þorlákshöfn og var hann þegar leikurinn fór fram leikmaður þess félags. Er því ekki um það deilt að kærði notaði í umræddum leik leikmann sem ekki hafði heimild til að leika með liðinu og verður þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst Drangur því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0.
Kærði hefur ekki áður gerst sekur um brot á reglum KKÍ sem varðað geta sektum. Með hliðsjón af því og málavöxtum öllum þykir ekki ástæða til að dæma kærða til greiðslu sektar til KKÍ.
Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ.
Ungmennafélagið Drangur telst hafa tapað leik gegn ÍBV körfuknattleiksfélagi í II. deild karla riðli A-5 sem fram fór 20. janúar 2007 með stigatölunni 0-20.


Halldór Halldórsson.

Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Ferðamátinn var stundum frumstæður; Olga Færseth, Svanhildur Káradóttir, Guðbjörg Norðfjörð, Hanna Kjartansdóttir, Björg Hafsteinsdóttir og Hildigunnur Hilmarsdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið