© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
22.2.2006 | Óskar Ó. Jónsson
Tölfræði liðanna í Iceland Express deild karla: 6. sæti Snæfell
Það eru aðeins fimm umferðir eftir af Iceland Express deild karla og framundan er því lokaspretturinn þar sem barist verður um deildarmeistaratitilinn, um sæti og heimavallarrétt í úrslitakeppninni auk þess sem fallbaráttan verður algleymingi.

Heimasíða KKÍ fer yfir frammistöðu liðanna í Iceland Express deildinni til þessa í hinum ýmsu tölfræðiþáttum og tekur fyrir eitt og eitt lið fram að 18. umferðinni sem hefst klukkan 19.15 á fimmtudagskvöldið. Snæfell er í 6. sæti í Iceland Express deildinni með 10 sigra og 7 töp.

Snæfell er í efsta sæti á þremur tölfræðilistum. Mótherjar liðsins taka fæst sóknarfráköst að meðaltali í leik, Snæfellsliðið tekur hlutfallslega flest fráköst undir sinni körfu og þá nýta varamenn liðsins vítin sín best af öllum varamönnum deildarinnar.Snæfell er einnig í 2. sæti yfir hæsta hlutfall frákasta en er ekki í neðsta sæti á neinum af tölfræðilistunum. Sætaröð Snæfells á öllum listunum má finna hér fyrir neðan.

Röð liða í Iceland Express deildinni:
1. Njarðvík 15 sigrar - 2 töp
2. Keflavík 13-4
3. KR 12-5
4. Grindavík 12-5
5. Skallagrímur 11-6
6. Snæfell 10-7
7. ÍR 9-8
8. Fjölnir 7-10
9. Hamar/Selfoss 4-13
10. Þór Akureyri 4-13
11. Haukar 3-14
12. Höttur 2-15

Leikir sem Snæfell á eftir:
23. febrúar HeimaleikurNjarðvík (1. sæti)
26. febrúar Útileikur Skallagrímur (5. sæti)
2. mars Heimaleikur KR (3. sæti)
5. mars Útileikur Haukar (11. sæti)
9. mars Heimaleikur Þór Akureyri (10. sæti)

Tölfræði Snæfells í Iceland Express deild karla 2005-2006:

Sóknarleikurinn:
Snæfell 6. sæti Flest stig í leik 86,9
Snæfell 10. sæti Fæstir tapaðir í leik 18,3
Snæfell 5. sæti Flestar stoðsendingar í leik 18,5
Snæfell 4. sæti Fæst varin skot mótherja 3,0
Snæfell 6. sæti Flest sóknarfráköst í leik 10,5
Snæfell 9. sæti Flestar fiskaðar villur í leik 19,2
Snæfell 4. sæti Flestar 3ja stiga körfur í leik 9,1
Snæfell 8. sæti Flest víti fengin í leik 20,1
Snæfell 7. sæti Besta skotnýting 45,1%
Snæfell 8. sæti Besta 3ja stiga skotnýting 33,7%
Snæfell 3. sæti Besta vítanýting 73,3%
Snæfell 8. sæti Hæsta hlutfall frákasta í sókn 30,2%

Varnarleikurinn:
Snæfell 3. sæti Fæst stig á sig í leik 83,0
Snæfell 5. sæti Fæstar villur fengnar í leik 19,6
Snæfell 4. sæti Flestir þvingaðir tapaðir í leik 18,2
Snæfell 6. sæti Fæstar stoðsendingar hjá móth 16,7
Snæfell 1. sæti Fæst sóknarfráköst mótherja 8,5
Snæfell 8. sæti Flest varin skot í leik 2,6
Snæfell 3. sæti Flestir stolnir boltar í leik 12,0
Snæfell 3. sæti Fæst víti gefin í leik 19,7
Snæfell 7. sæti Slakasta skotnýting móth. 44,2%
Snæfell 2. sæti Hæsta hlutfall frákasta 52,0%
Snæfell 1. sæti Hæsta hlutfall frákasta í vörn 74,6%
Snæfell 9. sæti Slakasta 3ja stiga skotnýting móth. 37,5%

Bekkurinn:
Snæfell 7. sæti Flest stig frá bekk í leik 16,4
Snæfell 10. sæti Flestar mínútur frá bekk í leik 46,9
Snæfell 5. sæti Flest fráköst frá bekk í leik 7,9
Snæfell 9. sæti Flestar stoðs frá bekk í leik 2,6
Snæfell 9. sæti Besta skotnýting hjá bekk 37,0%
Snæfell 1. sæti Besta vítanýting hjá bekk 80,3%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stærstur hluti þeirra dómara sem hófu leik haustið 2006 ásamt Richard Stokes, yfirmanni dómaramála hjá FIBA Europe, og Snorra Erni Arnaldssyni, formanni dómaranefndar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið