© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
18.1.2006 | Halldór Halldórsson
Dómstóll KKÍ - Mál nr. 11/2005
Ár 2006, mánudaginn 18. janúar er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 11/2005
Leiknir
gegn
Deiglunni

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

DÓMUR
I
Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 6. desember sl. og gögn málsins send formanni dómsins með símbréfi sama dag. Kærandi er körfuknattleiksdeild Leiknis, Austurbergi 1, Reykjavík. Kærði er Íþróttafélagið Deiglan Hringbraut 119, Reykjavík.
Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta meðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Dómkröfur
Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik milli aðila máls þessa sem í II. deild karla sem fram fór 4. desember sl.
Kærði gerir ekki kröfur í málinu.
Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. 2 tölvupóstur kærða til KKÍ. Nr. 3 skýrsla leiks aðila frá 4. desember 2005. Útprentun af heimasíðu KKÍ um félagskipti.
II
Dómari málsins hlutaðist til um að framkvæmdastjóri KKÍ gæfi kærða frest til að til að tjá sig um málið en það hefur hann ekki gert.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið Halldór Haukur Sigurðsson. Hann hafi ekki verið með leikheimild með kærða á þessum tíma.a. hann hafi þann 31. ágúst 2005 skipt úr Ármanni/Þrótti til ÍS og hann hafi leikið með ÍS eftir þessa dagsetningu.
III
Niðurstaða
Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæð 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Ekki er um það deilt að kærði notaði í umræddum leik leikmann sem ekki höfðu heimild til að leika með liðinu og verður þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst Deiglan því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0.
Kærði hefur ekki áður gerst sekur um brot á reglum KKÍ sem varðað geta sektum. Með hliðsjón af því og málavöxtum öllum þykir ekki ástæða til að dæma kærða til greiðslu sektar til KKÍ.
Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ.
Íþróttafélagið Deiglan telst hafa tapað leik gegn Leikni í II. deild karla sem fram fór 4. desember sl. með stigatölunni 0-20.


Halldór Halldórsson.

Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla á mót á Möltu í desember 1986.  Einar Bollason þjálfari, Ívar Webster og Gylfi Þorkelsson í einni af hinum frægu gömlu rútum á Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið