© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
3.11.2005 | Bogi Hjálmtýsson
Dómstóll KKÍ - Mál 9/2005
Ár 2005, fimmtudaginn 3. nóvember er dómþing körfuknattleiksdómstóls KKÍ sett og háð af Boga Hjálmtýssyni, að Bæjarhrauni 18, Hafnarfirði.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 9/2005;
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur.
gegn
Körfuknattleiksdeild Skallagríms.
.

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

DÓMUR.

I.
Mál þetta var móttekið af skrifstofu KKÍ þann 31. október 2005. Kærandi er Körfuknattleiksdeild Keflavíkur, kt., Hringbraut 108, 230 Keflavík. Kærður er Körfuknattleiksdeild Skallagríms kt. 590593-2499, Skallagrímsgötu 7, 310 Borgarnesi.

Undirritaður dómari í dómstól KKÍ tók við málinu þann 1. nóvember s.l.

Dómkröfur kæranda;

Kærandi krefst þess að í leik Skallagríms og Keflavíkur sem fram fór þann 16. október 2005, í Iceland Express deild karla, verði kæranda dæmdur 20-0 sigur.
Kærandi gerir einnig þá kröfu, ef Skallagrímur verði jafnt Keflavík að stigum í lok deildarkeppni geti Skallagrímur aldrei verið ofar í töfluröð en Keflavík.

Kærði hefur ekki látið málið til sín taka.

Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu;
Nr. 1 kæra dags. 31. október 2005.
Nr. 2 afrit leikskýrslu.
Nr. 3 afrit af tilkynningu til kærða um greinargerðarfrest.
Nr. 4 útskrift af heimasíðu KKÍ varðandi félagaskipti.
Nr. 5 staðfesting framkvæmdastjóra KKÍ dags. 3. nóvember 2005.


II.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum um 20-0 sigur í leiknum vísar kærandi til 1.gr. reglugerðar um erlenda leikmenn þar sem fram kemur að þeir leikmenn sem hafa ríkisfang Evrópulands og hafa heimild til að spila hér á landi samkvæmt reglum FIBA, skulu undirgangast sömu reglur og gilda um íslenska leikmenn. Félagaskipti leikmanns með evrópskt ríkisfang milli íslenskra félaga lúta reglugerð KKÍ um félagaskipti. Ef um er að ræða félagaskipti leikmanns með evrópskt ríkisfang úr félagi utan Íslands, en þó innan FIBA, gilda reglur FIBA, sbr. reglugerð KKÍ um félagaskipti. Þá er vísað til heimasíðu KKÍ þar sem fram komi í félagaskiptaskjali að Dimitar Karadzovski sé ekki löglegur leikmaður Skallagríms fyrr en 29. október 2005 og skv. 2. gr.a) og b) reglugerðar KKÍ um félagaskipti teljist tímabilið 1. september til 30. apríl vera leiktímabil samkvæmt reglugerðinni og að leikmaður sem óskar félagaskipta á keppnistímabili verði löglegur með hinu nýja félagi einum mánuði eftir móttöku beiðni um félagaskipti á skrifstofu KKÍ. Þar sem þessi mánuður hafi ekki verið liðinn sé leikmaðurinn ekki með leikheimild og Skallagrími því óheimilt að tefla honum fram í leik Skallagríms og Keflavíkur sem fram fór sunnudaginn 16. október s.l. í 2. umferð Iceland Express deildar karla.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum um að Skallagrímur geti aldrei orðið ofar í töfluröð en Keflavík ef félögin verða jöfn að stigum í lok deildarkeppni hefur kærandi bent á að það sé þeirra mat að sú refsing teljist hæfileg og viðunandi þar sem Skallagrími hafi verið ljóst að leikmaður var ólöglegur og hafi sér engar málsbætur. Einnig sé það þeirra mat að Skallagrímur hafi lítilsvirt andstæðinga sína og mótahald KKÍ. Vísað er til þess í samhengi að ef lið brýtur gegn reglum um launaþak þá geti það aldrei verið ofar en lið sem hafa jafn mörg stig að lokinni deildarkeppni og því sé það þeirra mat að þetta brot sé ekki síður alvarlegt og beri að taka á því með sambærilegum hætti, jafnvel þó um óskyldar reglugerðir sé að ræða.

III.
Framkvæmdastjóri KKÍ gaf kærða frest til að tjá sig um málið með tölvupósti dags. 1. nóvember 2005 og var frestur veittur til fimmtudagsins 3. nóvember kl. 12:00.
Kærði hefur ekki komið fram með neinar athugasemdir og er málið því tekið til meðferðar samkvæmt framlögðum gögnum með vísan til 8.gr.laga fyrir dómstóla KKÍ, án sérstakrar þingfestar eða bókana í þingbók.




IV.
Að framan er rakið að kærði hefur ekki látið málið til sín taka og er því rétt að líta svo á að hann telji fullyrðingar kæranda þess efnis að Dimitar Karadzovski hafi ekki uppfyllt hlutgengisreglur og því verið ólöglegur í leik liðanna sem fram fór þann 16. október 2005, í Iceland Express deild karla, réttar. Í grein 4.1.1. í leikreglum í körfuknattleik er gilda frá 1. september 2004 kemur fram að liðsmaður er hlutgengur þegar hann hefur fengið heimild til þess að leika fyrir lið samkvæmt reglum sem settar eru af skipuleggjendum keppninnar. Samkvæmt upplýsingum frá KKÍ um félagaskipti, hefur Dimitar Karadzovski heimild til þess að leika með Skallagrími frá og með 29. október 2005 að telja. Samkvæmt framanrituðu var Dimitar Karadzovski óheimilt að taka þátt í framangreindum leik samkvæmt ákvæðum 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót og mætti liðið því ólöglega skipað til leiksins. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FIBA hverju sinni. Áralöng venja er fyrir því að beita reglum FIBA um “game lost by forfeit”. Reglur FIBA sem hér er vísað til eru “Official Basketball Rules” sem tóku gildi þann 1. september 2004, grein 20 liður 2.1 er kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst Skallagrímur því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0.
Varðandi þá kröfu kæranda að Skallagrímur geti aldrei orðið ofar í töfluröð en Keflavík ef félögin verða jöfn að stigum í lok deildarkeppni má taka undir sjónarmið kæranda að kærði eigi sér engar málsbætur. Hins vegar verður að gera þá kröfu við ákvörðun refsinga eða refsikenndra viðurlaga að beinar heimildir fyrir refsingum sé að finna í lögum eða reglum KKÍ. Þar sem slík refsing kann að verða íþyngjandi fyrir kærða verður ekki beitt lögjöfnun eða rýmkandi lögskýringu frá reglum um launaþak sem er að finna í reglugerð um þátttöku félaga í úrvalsdeild karla og þátttöku meistaraflokks í bikarkeppin KKÍ. Af 16.gr. laga um dómstól KKÍ verður ekki séð að gert sé ráð fyrir slíkri dómsniðurstöðu. Kröfu þessari er því vísað frá dómi.
Viðurlög við sumum brotum voru áður ákveðin í reglugerð um körfuknattleiksmót en eru nú í höndum dómstólsins, sbr. 16. gr. laga um dómstóla KKÍ. Hér háttar svo til að Skallagrímur notaði leikmann sem uppfyllir ekki reglur um hlutgengi. Gera verður ráð fyrir því að félög sæti sektum þegar þau nota ólöglega leikmenn. Með hliðsjón af eðli brotsins og þeirrar staðreyndar að um ítrekað brot er að ræða, þykir refsing, sekt í máli þessu hæfilega ákveðin 30.000 krónur.

Bogi Hjálmtýsson, dómari í dómstól KKÍ kveður upp dóm þennan.



DÓMSORÐ.

Körfuknattleiksdeild Skallagríms telst hafa tapað leik gegn Körfuknattleiksdeild Keflavíkur sem fram fór þann 16. október 2005, í Iceland Express deild karla með stigatölunni 20-0.
Kröfum kæranda varðandi stöðu í töfluröð ef félögin verði jöfn að stigum í lok deildarkeppni er vísað frá dómi.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms greiði 30.000 króna sekt til KKÍ.


Bogi Hjálmtýsson, dómari í dómstól KKÍ.


Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti. KKÍ skal birta dóminn fyrir málsaðilum og á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstól KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úr leik í 2. deild karla seint á 20. öldinni. Á myndinni sjást dómararnir Pétur Hólmsteinsson og Rúnar Birgir Gíslason ásamt Sigurgeiri Sigurpálssyni, leikmanni Fylkis.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið