© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
3.11.2005 | Halldór Halldórsson
Dómstóll KKÍ - Mál 8/2005
Ár 2005, fimmtudaginn 3. nóvember er dómþing dómstóls Körfuknattleikssambands Íslands háð af Halldór Halldórssyni formanni dómsins.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 8/2005
Ungmennafélagið Glói
gegn
Létti

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

DÓMUR
I
Mál þetta er móttekið af skrifstofu KKÍ 23. október sl. og gögn málsins send formanni dómsins með símbréfi sama dag. Kærandi er körfuknattleiksdeild Ungmennafélagsins Glóa, Siglufirði. Kærði er Léttir í Reykjavík.
Dómsformaður ákvað að málið skyldi sæta flýtimeðferð skv. 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Dómkröfur
Kærandi krefst þess að sér verði dæmdur sigur í leik aðila í II. deild karla sem fram fór 23. október sl.
Kærði gerir ekki kröfur í málinu.
Eftirtalin skjöl hafa verið lögð fram í málinu. Nr. 1 kæra. Nr. 2 tölvupóstur kærða til KKÍ.
II
Dómari málsins hlutaðist til um að framkvæmdastjóri KKÍ gæfi kærða frest til að til að tjá sig um málið og það gerði hann með dómskjali nr. 2.
Sem rökstuðning fyrir kröfum sínum vísar kærandi til þess að kærði hafi verið með ólöglega skipað lið í umræddum leik. Með liði kærða hafi leikið a.m.k. 3 ólöglegir leikmenn. Guðjón Skúlason, sem fái leikheimild 3. nóvember, Ingvar Ormarsson sem skráður sé í KR en ekki verði séð að hann hafi skipt um félag og Ástþór Ingason en hann fái leikheimild 26. október. Þá telur kærandi að 3 aðrir leikmenn kunni að vera ólöglegir en þar sem kennitölur vanti á leikskýrslu sé erfitt að kanna hvort þeir séu í félagar í kærða.
Kærði sendi tölvupóst til KKÍ vegna málsins og þar kemur fram að fullyrðingar kæranda séu réttar varðandi leikmenn kærða séu réttar. Kærði gerir síðan grein fyrir ástæðum þess að leikmennirnir léku þennan leik og tekur sérstaklega fram að kærða hafi verið tilkynnt um að lið hans væri ekki löglega skipað en kærði hafi ekki gert athugasemdir við það og heldur ekki við dómara leiksins.
III
Niðurstaða
Þegar fyrir lá að kærði gerði ekki kröfur í máli þessu ákvað dómsformaður dómstóls KKÍ að dæma málið sjálfur í samræmi við niðurlagsákvæð 8. gr. laga um dómstól KKÍ.
Ekki er um það deilt að kærði notaði í umræddum leik leikmenn sem ekki höfðu heimild til að leika með liðinu og verður þegar af þeirri ástæðu að taka kröfu kæranda til greina. Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót telst lið sem ólöglega er skipað hafa tapað leik í samræmi við reglur FÍBA hverju sinni. Reglur FÍBA sem hér er vísað til, grein 30 liður 2.1, kveða á um að lið sem tapar leik af einhverjum ástæðum tapi honum með stigatölunni 20-0. Telst Léttir því hafa tapað nefndum leik með stigatölunni 20-0.
Kærði hefur lýst því hvernig það kom til að leikmennirnir léku umræddan leik. Því er lýst að lið hans sé að mestu skipað ,,gömlum þreyttum leikmönnum sem í þetta skiptið voru sumir ólöglegir samkvæmt reglum KKÍ. Þó svo eðlilegt sé að gera þá kröfu til forsvarsmanna félaga að þeir þekki reglur um félagaskipti í stórum dráttum og kynni sér það sem þeir telja óskýrt þá þykir eins og hér stendur á ekki ástæða til að dæma kærða til greiðslu sektar til KKÍ. Þá hefur og verið horft til þess að kærði kynnti kæranda um að lið hans væri ekki löglega skipað áður en leikurinn hófst.
Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ.
Léttir telst hafa tapað leik gegn ungmennafélaginu Glóa í II. deild karla sem fram fór 23. október sl. með stigatölunni 0-20.


Halldór Halldórsson.

Dómurinn er sendur til KKÍ í tölvupósti og skrifstofu sambandsins falið að birta dóminn fyrir aðilum. Dóminn skal birta á heimasíðu KKÍ í samræmi við ákvæði 17. gr. laga um dómstóla KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Tamara Bowie, Grindavík, og Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík, eigast við í leik liðanna tímabiði 2006-2007
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið