© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
   
24.3.2004 | Óskar Ó. Jónsson
Lið sem hafa lent 0-2 undir í úrslitakeppni karla
Njarðvíkingar eru upp við vegg í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Snæfelli í úrslitakeppni Intersportdeildarinnar. Engu liði sem hefur lent 0-2 undir í sögu úrslitakeppni karla hefur tekið að tryggja sér oddaleik, hvað þá að vinna einvígið en 10 af 14 liðum hafa tapað þriðja leiknum og einvíginu þar með 0-3 en fjögur hafa tryggt sér fjórða leikinn sem síðan tapaðist. Þetta er í 15. sinn sem lið lendir í þessarri óskemmtilegu aðstöðu í sögu úrslitakeppni karla.

Hér á eftir fara þau einvígi í sögu úrslitakeppninnar 1984-2001 þar sem annað liðið hefur komist í 2-0 í einvígi þar sem þarf að vinna þrjá leiki.

1990
Úrsliteinvígi: KR-Keflavík 2-0 varð 3-0 eftir 80-73 sigur KR í þriðja leiknum. (1)

1993
Úrsliteinvígi: Keflavík-Haukar 2-0 varð 3-0 eftir 108-89 sigur Keflavíkur í þriðja leiknum. (2)

1995
Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-Skallagrímur 2-0 varð 3-0 eftir 83-79 sigur Njarðvíkur í þriðja leiknum. (3)

1996
Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-Keflavík 0-2 varð 1-3 eftir að Njarðvík vann þriðja leikinn 79-74 á heimavelli en Keflavík vann síðan fjórða leikinn 99-74 í Keflavík. (4)

1997
Undanúrsliteinvígi: Grindavík-Njarðvík 2-0 varð 3-0 eftir 121-88 sigur Grindavíkur í þriðja leiknum. (5)
Úrsliteinvígi: Keflavík-Grindavík 2-0 varð 3-0 eftir 106-92 sigur Keflavíkur í þriðja leiknum. (6)

1998
Úrsliteinvígi: KR-Njarðvík 0-2 varð 0-3 eftir 94-106 sigur Njarðvíkur í þriðja leiknum á Nesinu. (7)

2001
Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-KR 2-0 varð 3-0 eftir 112-108 sigur Njarðvíkur í framlengdum þriðja leik. (8)
Úrsliteinvígi: Njarðvík-Tindastóll 2-0 varð 3-1 eftir að Tindastóll vann þriðja leikinn 93-96 í Njarðvík en Njarðvík vann síðan fjórða leikinn 96-71 á Sauðárkróki. (9)

2002
Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-KR 2-0 varð 3-1 eftir að KR vann þriðja leikinn 80-91 í Njarðvík en Njarðvík vann síðan fjórða leikinn 80-79 í KR-húsinu. (10)
Undanúrsliteinvígi: Keflavík-Grindavík 2-0 varð 3-1 eftir að Grindavík vann þriðja leikinn 85-94 í Keflavík en Keflavík vann síðan fjórða leikinn 86-84 í Grindavík. (11)
Úrsliteinvígi: Keflavík-Njarðvík 0-2 varð 0-3 eftir að Njarðvík vann þriðja leikinn, 93-102, í Keflavík. (12)

2003
Undanúrsliteinvígi: Keflavík-Njarðvík 2-0 varð 3-0 eftir 105-80 sigur Keflavíkur á heimavelli sínum í þriðja leiknum.(13)
Úrsliteinvígi: Grindavík-Keflavík 0-2 varð 0-3 eftir að Keflavík vann þriðja leikinn, 97-102, í Grindavík. (14)

2004
Undanúrsliteinvígi: Snæfell-Njarðvík 2-0 varð ???? [Þriðji leikurinn er í Stykkishólmi fimmtudaginn 25. mars 2004] (15)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1995.  Aftari röð frá vinstri: Sigurður Hjörleifsson þjálfari, Guðrún Kristjánsdóttir, Ragnheiður Kristinsdóttir, Hrefna Hugósdóttir, Elísa Vilbergsdóttir, Unnur Henrysdóttir, Svana Bjarnadóttir, Hanna Kjartansdóttir, Hannes S. Jónsson varaformaður, Sævar Guðbergsson stjórnarmaður og Jóhann Árnason formaður.  Fremri röð frá vinstri: Hildur Ólafsdóttir, Erla Hendriksdóttir, Penny Peppas, Olga Færseth og Sólveig Kjartansdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið