© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
16.1.2004 | Halldór Halldórsson
Úrskurður dómstóls KKÍ 14. janúar 2004
Ár 2004, miðvikudaginn 14. janúar, er háð þing í Dómstól KKÍ af Halldóri Halldórssyni formanni dómsins.

Fyrir er tekið:
Mál nr. 1/2004.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
gegn
KR.

Í málinu er kveðinn upp svofelldur

ÚRSKURÐUR
I.
Kærandi er Körfuknattleiksdeild Keflavíkur.
Kærði er KR.
Kæran barst skrifstofu KKÍ í símbréfi 9. janúar kl. 10:21. Með kærunni bárust engin frekari gögn.
Kröfur kæranda. Kærandi krefst þess að leikur milli hans og kærða sem fram fór í bikarkeppni unglingaflokks kvenna mánudaginn 5. janúar sl. kr. 19:30 í DHL höllinni verði leikinn að nýju á hlutlausum velli.
Ekki hefur verið leitað eftir afstöðu kærða.

II
Kæra sú sem fram er lögð í málinu er langt frá því að uppfya ákvæði 6. gr. laga fyrir dómstóla KKÍ. Í nefndri 6. gr. er í 9 tölusettum liðum skýrlega kveðið á um þau atriði sem fram þurfa að koma í kæru. Þar er m.a gerð karfa um að nafn, kennitala, heimilisfang, síma,- fax- og tölvupóstfang kæranda skuli koma fram í kærunni. Sömu upplýsingar skulu koma fram varðandi kærða. Þá er gerð krafa um að greint sé frá því hver sé forsvarsmaður kæranda og upplýsingar er hann varðar. Hér hefur einungis verið nefndur hluti þeirra atriða sem ekki koma fram í kærunni þrátt fyrir skýrt ákvæði nefndrar 6. greinar. Þá er það þjálfari unglingaflokks kæranda sem ritar undir kæruna en ekki forsvarsmaður félasins eins og rétt er að gera kröfu um.
Með hliðsjón af því sem að framan er rakið ber formanni dómstólsins skv. ákvæðum 7. gr. laga um dómstóla KKÍ að taka málið fyrir og vísa því frá dómi enda eru slíkir formgallar á málinu að það er ekki tækt til dóms. Máli þessu er því vísað frá dómi.
Halldór Halldórsson formaður dómstóls KKÍ kveður upp úrskurð þennan. Samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga um dómstóla KKÍ hefur kærði 3 daga frá því að honum varð kunnugt um þessa niðurstöðu til að leggja fram kæru að nýju.

ÚRSKURÐARORÐ
Máli þessu er vísað frá dómi.



Halldór Halldórsson
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá forkeppni Evrópumóts landsliða í Lugano í Sviss árið 1995.  Guðjón Skúlason og Skúli Unnar Sveinsson blaðamaður Morgunblaðsins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið