© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
28.9.2000 | Ósvaldur Knudsen
1. deild kvenna 2000-2001: ÍS
Framundan er útlit fyrir jafnt og spennandi tímabil í 1. deild kvenna. Lið Í.S. náði viðunandi árangri á síðasta tímabili er það hafnaði í þriðja sæti á Íslandsmótinu og í öðru sæti í bikarkeppni KKÍ. Leikmannahópurinn í fyrra var þannig skipaður: Hafdís Helgadóttir, Georgía Kristiansen, Svana Bjarnadóttir, Hulda María Stefánsdóttir, Jófríður Halldórsdóttir, Júlía Jörgensen, Kristjana Magnúsdóttir, María Leifsdóttir, Signý Hermansdóttir, Stella Rún Kristjánsdóttir og Þórunn Bjarnadóttir. Signý fór í nám til Bandaríkjanna um miðbik tímabilsins en hafði þá spilað stórt hlutverk í liðinu. Þrír leikmenn úr þessum hóp voru valdir í landsliðið og spiluðu með því nú í sumar. Það voru Kristjana, Stella og Signý. Hafdís æfði með landsliðinu framan af en gaf ekki kost á sér vegna meiðsla.

Það sem helst hrjáði liðið á síðasta tímabili var mannekla. Eftir áramót voru að jafnaði 6-8 leikmenn í æfingahópi liðsins. Ástandið hefur þó batnað talsvert að undanförnu því margir nýjir leikmenn hafa lagt leið sína í íþróttahús Kennaraháskólans og þar ber helst að nefna landsliðskonuna Lovísu Guðmundsdóttur.

Undirbúningur liðsins fyrir komandi tímabil hefur gengið ágætlega. Liðið tók þátt í skemmtilegu átta liða móti í Keflavík og Grindavík helgina 16.-17. september og hafnaði þar í þriðja sæti. Maður mótsins var Kristjana sem átti mjög góða helgi. Þann 21. september spilaði Í.S. til úrslita í Reykjavíkurmótinu á móti stöllum sínum í K.R þar sem við biðum lægri hlut eftir spennandi leik. Framundan er svo úrslitaleikur Meistararkeppninnar, en þar etja kappi tvöfaldir meistarar síðasta tímabils, Keflavík, og Í.S. sem spilaði í bikarúrslitum.

Íslandsmótið hefst um miðjan október. Við setjum markið hátt og teljum okkur eiga raunhæfa möguleika á að berjast um þá titla sem í boði eru. Keflavík og K.R. verða með góð lið eins og undanfarin ár. K.F.Í hefur sýnt og sannað að þær eiga verðskuldað sæti á meðal þeirra bestu og Grindavík hefur ungt og efnilegt lið sem mun draga mikinn lærdóm af því að spila í efstu deild.

Þegar á heildina er litið hafa tvö sterkustu liðinn frá því í fyrra misst snjalla leikmenn úr sínum herbúðum. Anna María og Alda Leif klæðast ekki Keflavíkurbúningnum í vetur og þær Guðbjörg Norðfjörð og Linda Stefánsdóttir munu ekki spila í vesturbænum. Vissulega er þetta mikill missir fyrir þessi lið en það verður vonandi til þess að gera baráttuna jafnari og skemmtilegri í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stöð 2 Sport tjaldaði öllu til þegar þeir gerðu úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla ítarleg skil vorið 2009. Hér eru þeir Guðjón Guðmundsson og Svali Björgvinsson lýsendur í mynd á þriðja leik KR og Grindavíkur í úrslitum 2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið