© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.3.2003 | 10:25 | bl
Lokaumferðin í kvöld
Mikil spenna er um hvaða lið tryggir sér 8. sætið í INTERSPORT-deildinni, en þrjú félög eiga möguleika á sætinu. Leikur Hauka og KR í kvöld er úrslitaleikur um 3. sætið. Haukar þurfa að sigra með 3 stiga mun til að tryggja sér sætið.

Þrjú félög eiga möguleika á 8. sætinu, Snæfell, Breiðablik og Hamar. Vinni Snæfell sigur á Keflavík heldur liðið 8. sætinu, en tapi Snæfell eiga Breiðablik og Hamar möguleika. Sigri þau bæði í leikjum sínum þá tekur Breiðablik 8. sætið, en ef Breiðablik tapar og Hamar sigrar í leiknum gegn deildarmeisturum Grindavíkur, þá verða Hamarsmenn mótherjar Grindvíkinga í 1. umferð úrslitakeppninnar.

Fleiri spennupunktar eru í deildinni, en ÍR og Tindastóll berjast um 6. sætið í deildinni. Reyndar getur Tindastóll náð 5. sætinu með sigri á ÍR, ef Njarðvík tapar fyrir Breiðabliki. Liðin tvö sem þegar eru fallin í 1. deild mætast í lokaumferðinni. Tapliðið í þeim leik verður neðst í deildinni.

Leikir kvöldsins er þessir:
Ásvellir 19.15 Haukar - KR
Hveragerði 19.15 Hamar - UMFG
Keflavík 19.15 Keflavík - Snæfell
Njarðvík 19.15 UMFN - Breiðablik
Seljaskóli 19.15 ÍR - Tindastóll
Valsheimili 19.15 Valur - Skallagrímur

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð unglingalandsliðs kvenna á mót í Nicosiu á Kýpur árið 1999.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið