© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.2.2003 | 10:04 | phs
Breytingar á leikreglum
Á síðasta fundi tækninefndar FIBA var ákveðið að leggja til við miðstjórn FIBA breytingar á leikreglunum sem taka skulu gildi á næsta keppnistímabili.

1. Þegar knöttur er í loftinu eftir körfuskot og 24 sekúndna klukkan hringir skal ekki stöðva leikinn ef knötturinn fer í hringinn.

2. Hverju liði verður heimilt að taka 5 leikhlé í venjulegum leiktíma. Hægt er að taka tvö þeirra í fyrri hálfleik, (leikhlutar 1 og 2) og þrjú hvenær sem er í síðari hálfleik (leikhlutar 3 og 4).

3. Dómarakast verður aflagt úr reglunum nema við upphaf leiks, upphaf síðari hálfleiks og upphaf hverrar framlengingar.

Verði tillögurnar samþykktar í miðstjórn FIBA sem fundar í maí 2003 munu þær taka gildi á næsta keppnistímabili.

Tækninefndin lagði til tvær breytingar til viðbótar sem taka munu gildi keppnistímabilið 2004 - 2005 verði þær samþykktar.

1. Í öllum stærstu mótum FIBA eftir Ólympíuleikana í Aþenu verði þrír dómarar í hverjum leik.

2. Kvennaboltinn (nr. 6) verði notaður í öllum kvennamótum á vegum FIBA. Þetta er gamalt baráttumál Norðurlandanna innan FIBA og sérstaklega ánægjulegt að sjá að Tækninefndin mælir nú með samþykkt þess. Öll Norðurlöndin hafa notað bolta nr. 6 undanfarin ár í kvennadeildum sínum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Leikmenn með blómaleiki, Albert Óskarsson, Guðmundur Bragason, Magnús Matthíasson og Guðjón Skúlason.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið