© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.2.2003 | 23:49 | Óskar Ó. Jónsson
Fyrsti sigur ÍR-inga í Ljónagryfjunni í 20 ár
Það urðu mikil tímamót í Intersportdeildinni í körfubolta í kvöld. ÍR-ingar unnu í kvöld sinn fyrsta úrvalsdeildarsigur í Ljónagryfjunni í 20 ár en fyrir 95-97 sigur Breiðahyltinga á Íslands- og bikarmeisturunum höfðu Njarðvíkingar unnið 18 deildarleiki liðanna í röð í Njarðvík. Þetta var jafnframt fyrsti sigur ÍR á Njarðvík í úrvalsdeildinni síðan 27. október 1994 en liðið hafði tapað 14 úrvalsdeildarleikjum í röð. ÍR og Njarðvík eru sigursælustu félög Íslands, ÍR-ingar hafa unnið titilinn 15 sinnum og Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar í tólfta sinn síðasta vor.

Síðasti sigurleikur ÍR-ingar í Ljónagryfjunni kom fyrir 20 árum og það næstum uppá dag 4. febrúar 1983, en ÍR vann þann leik 60-78 og skoraði Kolbeinn Kristinsson þá 25 stig fyrir ÍR-liðið og Pétur Guðmundsson 24. Valur Ingimundarson var stigahæstur fyrir Njarðvík, var með 24.

ÍR-ingar nýttu 36 af 58 skotum sínum í leiknum í gær (62%) og nýttu meðal annars 9 af 10 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleik. ÍR-ingar nýtti aðeins 20 af 82 skotum sínum í fyrri leik liðanna í Seljaskóla (24%) og bættu sig þar með um 38% í nýtingu milli þessarra leikja.

ÍR-liðið lagði grunninn að sigri sínum í öðrum leikhluta sem liðið vann 36-21 en Breiðhyltingar hittu þá úr 14 af 16 skotum sínum (88%) og þar af öllum fimm þriggja stiga skotum sínum. Sigurður Þorvaldsson skoraði 13 stig í leikhlutanum (6/7 í skotum) og Eiríkur Önundarson var með 7 stig (3/3 í skotum) og fjórar stoðsendingar.

Það dugði Njarðvíkingum ekki að vinna fráköstin bæði undir sinni körfu, 15-4, sem og undir körfu ÍR-liðsins, 17-16. Njarðvíkurliðið vann fráköstin þar með 32-20 og átti fimm frákastahæstu leikmenn vallarsins en allt kom fyrir ekki en 20 þriggja stiga skot misfórust hjá liðinu í leiknum.

G.J. Hunter hjá Njarðvík skoraði 15 af 24 stigum sínum og gaf 5 af 8 stoðsendingum sínum í seinni hálfleik og Teitur Örlygsson var með 21 stig, 7 fráköst, 8 stoðsendingar og 3 stolna bolta í liði Njarðvíkur.

Hjá ÍR skoraði Sigurður Þorvaldsson 23 stig á 25 mínútum og nýtti 10 af 13 skotum sínum (77%). Eugene Christopher var með 21 stig , 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta auk þess sem fyrirliði liðsins, Eiríkur Öundarson, nýtti 7 af 10 skotum sínum (4/6 í þriggja) og skoraði 20 stig, gaf 7 stoðsendingar og stal 2 boltum í leiknum þar af stal hann öðrum boltanum af Teiti Örlygssyni á lokasekúndu leiksins.

Keflavík og Grindavík unnu stóra sigra í hinum leikjum kvöldsins, Keflvíkingar unnu sinn fjórða deildarleik í röð, 113-74, gegn Hamri og topplið Grindavíkur vann sinn níunda deildarleik í röð, 97-80 á Skallagrími.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri KKÍ á myndbandsupptökuvélinni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið