© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.8.2014 | 13:27 | Kristinn | FIBA
FIBA sendir þér stöðu leikja á HM í rauntíma á Twitter


Nú er HM í körubolta hafið en fyrsti leikdagur er í dag. FIBA og Twitter hafa tekið höndum saman og kynna skemmtilega þjónustu sem sendir þeim sem vilja stöðuna í rauntíma.

Það eina sem þarf að gera er að tísta á "@FIBA scores" og um hæl kemur mynd með stöðunni í leikjum dagisins sem eru í gangi og úrslit úr þeim leikjum sem er lokið.

Á myndinni má sjá hvernig þetta lítur út en þetta er frábær þjónusta og hægt að kalla hana fram hvar og hvenær sem körfuboltaáhugamenn eru staddir hverju sinni.

Einnig er hægt að ná í FIBA Game Center-appið og fylgjast með stöðunni þar bæði á IOS og Android tækjum eða sjá lifandi tölfræði á heimsíðu mótsins með hefðbundnum hætti á www.fiba.com/spain2014.

Einnig minnum við á að fyrir um 700 kr. er hægt að kaupa aðgang á netinu að beinum útsendingum frá öllum leikjum mótsins í góðum gæðum og öflugum straum frá sjónvarpsíðu FIBA hérna og styrkja KKÍ um leið því hluti söluandvirðis af áskriftum pöntuðum í gegnum kki.is rennur til sambandsins.

Góða skemmtun!
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Þórs Ak. í 2. aldursflokki sem varð Íslandsmeistari 1969.  Aftari röð frá vinstri: Einar Bollason þjálfari, Viktoría Hannesdóttir, Guðný Jónsdóttir, Ásta Pálmadóttir, Aðalbjörg Helgadóttir og Haraldur Helgason formaður Þórs.  Fremri röð frá vinstri: Arna Jónsdóttir, Aðalbjörg Ólafsdóttir, Inga Ólafsdóttir og Friðný Jóhannesdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið