© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.1.2003 | 1:56 | Óskar Ó. Jónsson
Guðmundur tók 3000. frákastið í Seljaskóla í gær
Guðmundur Bragason náði merkum áfanga í Intersportdeildinni í gær en hann tók þá sitt 3000. frákast í úrvalsdeildinni í 74-79 sigri á ÍR í Seljaskóla en enginn hefur tekið jafnmörg fráköst í sögu deildarinnar. Guðmundur vantaði fyrir leikinn fimm fráköst upp á að brjóta 3000. frákasta múrinn en hann tók síðan níu fráköst í leiknum í gær. Guðmundur er nú að leika sitt 14. tímabil í úrvalsdeildinni en hann lék fyrst með Grindavík tímabilið 1987 til 1988. Guðmundur hefur leikið með tveimur félögum í deildinni, Grindavík í 11 tímabil (1987-1996, 1998-1999 og 2002-) og Haukum í 3 tímabil (1999-2002).

Tímabil og fráköst Guðmundar:
1987-88 Grindavík, engin tölfræði tekin saman
1988-89 Grindavík, 26 leikir, 339 fráköst (13,0 í leik)
1989-90 Grindavík, 26 leikir, 245 fráköst (9,4)
1990-91 Grindavík, 26 leikir, 247 fráköst (9,5)
1991-92 Grindavík, 26 leikir, 284 fráköst (10,4)
1992-93 Grindavík, 26 leikir, 270 fráköst (10,9)
1993-94 Grindavík, 26 leikir, 301 frákast (11,6)
1994-95 Grindavík, 32 leikir, 360 fráköst (11,3)
1995-96 Grindavík, 32 leikir, 243 fráköst (7,6)
1996-1998 Lék í Þýskalandi (Hamburg, 2. deild)
1998-99 Grindavík, 11 leikir, 99 fráköst (9,0)
Fór til Weissenfels í Þýskalandi eftir áramót
1999-2000 Haukar, 22 leikir, 229 fráköst (10,4)
2000-2001 Haukar, 16 leikir, 134 fráköst (8,4)
2001-2002 Haukar, 20 leikir, 159 fráköst (8,0)
2002-2003 Grindavík, 13 leikir, 94 fráköst (7,2)

Finna má tölfræði ferils Guðmundar hér.

Flest fráköst í sögu úrvalsdeildar:
Guðmundur Bragason 3004
John Rhodes 2548
Rondey Robinson 2455
Jónatan Bow 2118
Alexander Ermolinskij 2011
Birgir Mikaelsson 1502
Teitur Örlygsson 1448
Valur Ingimundarson 1403
Jón Arnar Ingvarsson 1376
Friðrik Stefánsson 1307

Finna má upplýsingar um frákastahæstu leikmenn í sögu úrvalsdeildar hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Danny Shouse var frábær með Njarðvíkurliðinu veturinn 1980-1981 og það var að miklu leyti honum að þakka að liðið varð loksins meistari.  Hér er Gísli Gíslason, leikmaður ÍS, til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið