© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.12.2002 | 13:15 | Óskar Ó. Jónsson
Tap fyrir Kýpur í fjórða leiknum á tveimur sólarhringum
Íslenska karlalandsliðið tapaði fjórða og síðasta leiknum sínum á Spuerkeess-mótinu í Lúxemburg í morgun. Strákarnir töpuðu fyrir Kýpverjum, 59-66, sem með sigrinum tryggðu sér sigur á mótinu þrátt fyrir að eiga leik gegn heimamönnum inni. Íslensku strákarnir voru útkeyrðir enda að spila sinn fjórða landsleik á tæpum tveimur sólarhringum en Kýpverjar voru hinsvegar aðeins að leika sinn þriðja leik. Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 13 stig.

Kýpurmenn mættu ferskir til leiks og leiddu 7-14 eftir fyrsta leikhluta. Íslensku strákarnir komu sér inn í leikinn á ný fyrir hálfleik en gáfu eftir í þriðja leikhluta þegar Kýpur náði 10 stiga forskoti. Friðrik Ingi Rúnarsson hvíldi nokkuð þá leikmenn sem mest hafði reynt á og nær allir leikmenn voru að spila í kringum 20 mínúturnar í leiknum.

Ísland-Kýpur 59-66 (7-14, 25-28, 38-48)
Stig Íslands: Sigurður Þorvaldsson 13 (5 fráköst), Sverrir Þór Sverrisson 9 (3 stolnir), Friðrik Stefánsson 8 (9 fráköst), Skarphéðinn Ingason 8, Jón Arnór Stefánsson 5, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5, Páll Kristinsson 4, Magni Hafsteinsson 3, Páll Axel Vilbergsson 2, Jón Nordal Hafsteinsson 2.

Yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Dómari í leik Íslands og Slóveníu prufar leikboltann áður flautað er til leiks  hjá A-landsliði kvenna í Evrópukeppninni 2008 að Ásvöllum. Gestirnir höfðu sigur 69:94 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 30:46
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið