S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
28.12.2002 | 13:34 | Óskar Ó. Jónsson
Jón Arnór setti met sem seint verður slegið - lék í rúmar 57 mínútur
Venjulegur leiktími er 40 mínútur og lék Jón Arnór því í 17 mínútur og 20 sekúndur til viðbótar venjulegum leik. Jón Arnór skoraði 26 stig til saman í þessum tveimur leikjum en Friðrik Stefánsson, sem lék næstlengst, skoraði flest stigin í gær eða alls 29 í leikjunum tveimur auk þess að taka 22 fráköst á þeim rétt tæpu 56 mínútum sem hann var inná í gær. Til að bæta met Jóns Arnórs þar viðkomandi leikmaður í fyrsta lagi að spila allan tímann og leikurinn þarf að auki að vera fjórframlengdur því Jón lék í 2 mínútur og 20 sekúndur umfram þríframlengdan leik. Það má með vissu segja að 27. desember 2002 verði lengi í sögubókunum hjá íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Íslensku strákarnir fá tækifæri til að hefna tapsins gegn Lúxemburg strax í kvöld en þá spila þjóðirnar aftur og hefst leikurinn klukkan 19:30. Samkvæmt dagskrá mótsins átti sá leikur að fara fram klukkan 13:30 í dag sem hefði þýtt þriðja landsleik íslenska liðsins á einum sólarhring en það tóku menn alls ekki mál og var leikurinn því færður fram á kvöld. Yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna hér. |