© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.12.2002 | 17:45 | Óskar Ó. Jónsson
Tvær 14 ára stelpur spiluðu í tapi gegn Englandi
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði 44-59 fyrir Englandi í sínum fyrsta leik á Spuerkeess-mótinu í Lúxemburg í dag en auk þess taka landslið heimamanna og Svíþjóðar þátt í mótinu. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 14 stig og stal að auki 6 boltum.
Það má margt betur fara hjá íslenska liðinu og 28 tapaðir boltar (15 í fyrri hálfleik) voru íslenska liðinu mjög dýrkeyptir. Íslenska liðið vann sig þó inn í leikinn á ný í öðrum leikhluta, sem vannst 10-5 og höfðu þær ensku 4 stiga forskot í hálfleik, 25-29.

Stig íslenska liðsins: Birna Valgarðsdóttir 14 (6 stolnir), Helga Jónasdóttir 7, Marín Rós Karlsdóttir 6 (6 fráköst), Erla Þorsteinsdóttir 6 (6 fráköst), Hildur Sigurðardóttir 5, Helga Þorvaldsdóttir 4, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2.

Allar stelpurnar spiluðu leikinn og bæði Helena Sverrisdóttir, Haukum og Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Njarðvík, komu inn á lokakaflanum en þær eru tvær yngstu landsliðsmenn Íslands í hópíþróttum frá upphafi. Helena er sú yngsta fædd 11. mars 1988 en Ingibjörg Elva er fædd sex dögum áður eða 5. mars 1988.
Íslenska liðið leikur næst gegn Svíum á morgun en yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þóra Melsted, formaður unglinganefndar KKÍ, og Anna María Ævarsdóttir, leikmaður U18 kvenna, á Norðurlandamótinu í Svíþjóð árið 2004.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið