© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.12.2002 | 15:00 | bl
Firma og félagahópakeppni Vals á milli jóla og nýárs
Valsmenn halda sína árlega firma og félagahópakeppni á milli jóla og nýárs. Mótið fer fram föstudag 27., laugardag 28. og sunnudag 29. desember 2002.

Leikið verður í báðum sölunum að Hlíðarenda. Mótafyrirkomulagið fer eftir fjölda þátttökuliða. Leikið verður í riðlum og úrslitakeppni fer fram á sunnudeginum þar sem öll liðin leika a.m.k. einn leik.

Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda. Á laugardeginum og sunnudeginum verða seldar léttar veitingar á vægu verði að Hlíðarenda.

Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 15 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum.

Breyting frá fyrri mótum er sú að nú er er ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Intersportdeild í liðunum. Þátttökugjald er kr. 15.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs.

Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökkum fyrir það liðna.

Hannes Birgir Hjálmarsson
hannesb@centrum.is sími: 8929376
Torfi Magnússon
tm@ismennt.is sími:6618012
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Páll Kristinsson í leik gegn heimamönnum, Tyrkjum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið