S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.12.2002 | 9:52 | phs
Nýr landsliðsþjálfari
![]() Hjörtur tekur við af Sigurði Ingimundarsyni sem hefur þjálfað liðið sl. eitt og hálft ár. Samningur Sigurðar og KKÍ rann út fyrir nokkru og gaf Sigurður ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem landsliðsþjálfari kvenna sökum anna. Hjörtur hefur undanfarið ár verið aðstoðarmaður Sigurðar með kvennalandsliðið og þekkir því vel til á þeim vettvangi. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem þjálfari hjá Þór Akureyri sem og hjá Keflavík. Hjörtur er margreindur landsliðsmaður í körfuknattleik, með mikla reynslu sem vafalaust á eftir að nýtast honum vel í starfi hans sem landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins. Um leið og KKÍ þakkar Sigurði Ingimundarsyni frábær störf í þágu kvennalandsliðsins býður það Hjört Harðarson velkominn til starfa og væntir mikils af stöfum hans í framtíðinni. Næsta verkefni kvennalandsliðsins er þátttaka í alþjóðlegu móti milli jóla og nýárs í Luxembourg þar sem liðið mun leika gegn Svíum, Englendingum auk heimamönnum í Luxembourg. |