© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.11.2002 | 16:14 | bl
Tveir leikir í INTERSPORT-deildinni í kvöld
Tveir leikir eru á dagskrá INTERSPORT-deildarinnar í kvölg. Botnlið Skallagríms fær topplið Grindvíkinga í heimsókn, en Grindvíkingar eru sem kunnugt er eina taplausa liðið í deildinni. Hinn leikurinn er viðureign ÍR og UMFN í Seljaskóla. Báðir leikirnir hefjast kl. 19.15.

Fjórir leikur fór fram í deildinni í gær. Mesta athygli vakti stórsigur Keflvíkinga á Hamri í Hveragerði, 83-137. Þetta er mesta stigaskor eins liðs í deildinni (í leik án framlengingar) frá því Keflavíkingar gerðu 138 stig gegn Þór í deildinni 7. mars 1999, en sá leikur fór 138-94.

Við minnum einnig á fyrri leikina í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins um helgina, en þrír þeirra eru á dagskrá á sunnudagskvöld. Á morgun verður fyrsti leikurinn þegar Hamar og KR mætast í Hveragerði. Leikir þessara liða að undanförnu hafa undatekningarlaust verið háspenna frá upphafi til enda. Leikurinn á morgun verður sýndur beint í Sjónvarpinu og hefst leikurinn kl. 16:30.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Teitur Örlygsson tók við sem þjálfari Stjörnunnar um áramótin 2008/2009 og stýrði þeim til sigurs í Subway-bikarnum. Stjarnan vann 2 af 7 leikjum fyrir áramót en 7 af 11 eftir áramót.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið