© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.10.2002 | 9:29 | bl
Hópbílamót Fjölnis 23.-24. nóvember
Eins og undanfarin ár mun körfuknattleiksdeild Fjölnis, í samvinnu við Hópbíla ehf., standa fyrir stórmóti fyrir yngstu iðkendur körfubolta þ.e.a.s. fyrir drengi fædda 1992 og síðar og stúlkur fæddar 1991 og síðar. Mótið verður haldið í íþróttamiðstöðinni Dalhúsum og í íþróttahúsi Rimaskóla dagana 23. og 24. nóvember n.k.

Þátttökugjald er kr. 10.000 á hvert félag og 3.000 kr. á hvern leikmann. Innifalið í þessu verði er gisting í Rimaskóla, ásamt kvöldverði, morgunverði og pizzuveislu. Einnig verður boðið uppá bíóferð, sund og kvöldvöku.

Ekki verður keppt um sæti heldur verður leikgleðin látin ráða ríkjum og fá allir keppendur verðlaunapening að móti loknu.

Þátttaka tilkynnist til Halldórs í síma 587-2478, 893-2478 eða doriandsalvor@hotmail.com fyrir 10. nóvember n.k.

Vonumst til að sjá sem flesta á þessu skemmtilega móti.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Sarajevo í Bosníu v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.  Jón Kr. Gíslason reynir að koma skilaboðum til Teits Örlygssonar, en ekki heyrðist mannsins mál í húsinu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið