© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.10.2002 | 18:49 | bl
INTERSPORT styrkir körfuboltann
Intersport á Íslandi og Körfuknattleikssamband Íslands hafa náð samkomulagi um að Intersport verði helsti syrktaraðili úrvalsdeildar karla í körfuknattleik leiktímabilin 2002-2005. Með samkomulaginu hlýtur úrvalsdeildin nafnið INTERSPORT-deildin í körfuknattleik.

Vegur körfuknattleiks hefur farið sívaxandi undanfarin ár og körfuboltinn er nú meðal vinsælustu íþróttagreina hér á landi með fjölda afreksmanna í sínum röðum. Við styðjum körfuboltann þó ekki bara sem grein fyrir afreksmenn, heldur ekki síst af því að körfubolti er íþrótt fyrir alla: hann er jafnskemmtilegur sem götusport og skipulögð hópíþrótt.

Við fögnum hinum nýja samningi og erum viss um að samstarfið verður báðum aðilum til hagsbóta.


STÆRSTA SPORTVÖRUVERSLUN LANDSINS
– OG SÚ STÆRSTA Í HEIMI

Verslanir INTERSPORT eru nú 3 á landinu, að Bíldshöfða 20, í Smáralind og á Selfossi. Verslunin að Bíldshöfða er meðal stærstu íþróttaverslana á Norðurlöndum og allar Intersport verslanir okkar státa af úrvali og þjónustu í heimsklassa.

INTERSPORT er alþjóðleg verslanakeðja með starfsemi um allan heim. Verslanir Intersport eru um 4.700 talsins í 25 þjóðlöndum og er ársvelta þeirra yfir 450 milljarðar íslenskra króna, eða nærri tvöföld íslensku fjárlögin.

Fréttatilkynning 9. október 2002

INTERSPORT
Bíldshöfða 20

Nánari upplýsingar: Sverrir Þorsteinsson framkvæmdastjóri, s: 510 8020


mt: Frá blaðamannafundi KKÍ og INTERSPORT sem haldinn var í verslun INTERSPORT í Smáralind í dag.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Árni Ragnarsson Fjölni sækir að körfu Grindvíkinga í leik liðanna 5. janúar 2007. Páll Kristinsson Grindavík er til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið