© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.8.2014 | 11:00 | Kristinn | Landslið
Hlynur fékk nýja skó frá Útilífi · Verður með á morgun!
Hlynur Bæringsson spilar í glænýjum skóm á morgun
Hlynur Bæringsson meiddist sem kunnugt er á ökkla í sigurleiknum mikilvæga í Bretlandi í síðustu viku en nú er útlit fyrir að hann verði með á morgun í lokaleik Íslands gegn Bosníumönnum í Laugardalshöllinni.

Ekki nóg með að Hlynur hafi meiðst í lok leiks heldur rifnuðu að auki körfuboltaskórnir hans í átökunum í leiknum og enduðu þeir ferð sína í ruslatunnunni í Copper Box Arena í London að leik loknum.

Það voru því góð ráð dýr nú þegar finna þurfti skó í stærð 48 með skömmum fyrirvara. Leitað var til Útilífs og áttu þeir til skó í hans stærð á lager og ákváðu þeir að gefa landsliðsfyrirliðanum skóparið fyrir leikinn mikilvæga á morgun.

Það var starfsmaður Útilífs í Kringlunni sem afhenti Hlyni skónna í morgun og Hlynur Bæringsson verður því með á morgun í treyju númer #8 og mun leggja sitt af mörkum til að Ísland tryggi sér sæti á EuroBasket 2015, lokakeppni Evrópumótsins, á næsta ári.

Takk kærlega Útilíf og áfram Ísland!
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Ólafur Jón Ormsson í leik gegn heimamönnum, Tyrkjum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið