© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.8.2014 | 9:14 | Kristinn | Landslið
ÍSLAND · BOSNÍA á miðvikudaginn
Á miðvikudaginn kemur fer fram lokaleikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EuroBasket 2015 í Laugardalshöllinni.

Þá mæta Bosníu menn í Höllina en leikur liðanna hefst kl. 19.30. Staðan er sú eftir gærkvöldið að leikir í öðrum riðlum fóru ekki eins og hefði hentað Íslandi best upp á að tryggja sæti sitt endanlega á lokakeppnina en við því var að búast. Með sigri í leiknum tryggjum við okkur 1. sæti riðilsins og þar með öruggt sæti á EM næsta haust.

KKÍ hvetur alla körfuknattleiksaðdáendur að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á strákunum. Miðasala fer fram á www.midi.is en mikill áhugi er á leiknum og vonum við að það verði uppselt. Því er um að gera að tryggja sér miða í tíma og mæta tímanlega á leikstað til að forðast biðraðir.

Miðaverð er 1500 kr. fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið U18 kvenna á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð 2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið