© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.8.2014 | 7:00 | Stefán | Landslið
Hörður Axel setti persónulegt stigamet í öðrum leiknum í röð
Hörður stóð vaktina í vörninni
Hörður Axel Vilhjálmsson átti frábæran leik í fyrradag þegar íslenska karlalandsliðið tryggði sér annað sætið í riðli sínum í undankeppni EM með 71-69 sigri á Bretlandi í Koparkassanum í London.

Hörður Axel skoraði 17 stig þar af komu 12 þeirra í seinni hálfleiknum þar sem hann átti líka fjórar stoðsendingar á félaga sína. Hörður Axel hitti úr 3 af 5 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og tapaði ekki einum einasta bolta.

Þarna erum við ekkert farin að tala um varnarleikinn hjá stráknum en hann gaf tóninn þar með frábærri pressu á leikstjórnanda Bretanna.

Hörður Axel bætti þarna sitt persónulega met yfir flest stig í landsleik og hann var að bæta metið sitt í öðrum leiknum í röð.

Hörður Axel skoraði 14 stig í leiknum í Bosníu á sunnudagskvöldið en fjórir af sex stigahæstu leikjum hans með landsliðinu hafa komið á þessu ári.

Flest stig Harðar Axel Vilhjálmssonar í einum leik með A-landsliðinu:
17 - á móti Bretlandi 20. ágúst 2014
14 - á móti Bosníu 17. ágúst 2014
13 - á móti Makedóníu 21. júlí 2013
11 - á móti San Marínó 5. júní 2009
11 - á móti Lúxemborg 2. ágúst 2014
9 - á móti Lúxemborg 31. júlí 2014
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá forkeppni Evrópumóts landsliða í Lugano í Sviss árið 1995.  Guðmundur Bragason, Sigfús Gizurarson og Herbert Arnarson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið