© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.8.2014 | 21:44 | Stefán | Landslið
Sigur á Bretum í frábærum leik
Strákarnir að fagna sigri á Bretum
Íslenska karlalandsliðið vann Breta í kvöld 69-71 í frábærum körfuknattleik. Eftir að hafa verið undir allan fyrri hálfleikinn sýndi liðið ótrúlega seiglu í þeim seinni og vann upp 14 stiga forskot Breta.

Dramatíkin í lokin var engu lík en stórar körfur frá Herði Axeli og Jóni Arnóri Stefánssyni kláruðu Bretana.

Þessi sigur þýðir að Ísland lendir aldrei neðar en í 2. sæti í A-riðli. Í undankeppninni eru sjö riðlar og fara sigurvegarar allra riðlanna áfram á Evrópumótið ásamt sex af sjö bestu sætunum í 2. sæti. Fyrir leik kvöldsins var Ísland með næst besta árangurinn af öllum liðunum í 2. sæti og við þessi úrslit styrkir liðið stöðu sína. En eru tvær umferðir eftir og Ísland á einn leik eftir gegn Bosníu í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 27. ágúst.

Stigahæstur hjá Íslandi var Jón Arnór Stefánsson með 23 stig og næstur honum var Hörður Axel Vilhjálmsson með 17 stig.

Eins og áður segir er ekkert í hendi enn með sæti á Eurobasket, enn eru margir leikir eftir en vissulega jukustu möguleikarnir mikið með sigrinum í kvöld.
Eftir leiki kvöldsins er staðan sú að Bosnía, Ísrael, Pólland, Belgía, Tékkland , Lettland og Ítalía fara áfram í 1. sæti. 2 lið eru með 2 sigra í 2. sæti, Ísland og Makedónía og þar eru Makedónar ofar með 1,0534 en Ísland er með 1,0237. Restin er með 1 sigur og þar eru Rússar með 1,2050, Þýskaland með 1,000, Georgía með 0,9595, Svartfjallaland með 0,9298 og eftir situr Rúmenía með 0,8875.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Mix mótið í körfubolta var haldið sunnudaginn 1. júlí 2007.  Veðrið lék við körfuboltamenn og konur og sáust mörg skemmtileg tilþrif.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið