© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.8.2014 | 8:00 | Stefán | Landslið
Enginn íslensku strákanna var fæddur þegar Ísland spilaði síðast Evrópuleik á Englandi
Pétur Guðmundsson skoraði 34 stig gegn Englendingum árið 1977
Íslenska körfuboltalandsliðið mætir Englendingum í Koparkassanum í London í kvöld í þriðja leik sínum í undankeppni Evrópumótsins og getur tryggt sér annað sætið í riðlinum með sigri í leiknum. Sá sigur gæti einnig skilað íslenska liðinu inn á EM á næsta ári.

Íslenska landsliðið mun þarna spila sinn fyrsta Evrópuleik á Englandi síðan í aprílmánuði 1977 þegar íslensku strákarnir tóku þátt í C-riðli Evrópukeppninnar í Hempsted undir stjórn þeirra Einars Bollasonar og Birgis Örn Birgis.

Fyrsti leikur Íslands var einmitt á móti heimamönnum í enska landsliðinu og tapaðist hann með 8 stigum, 85-93. Þetta var samt stórmerkilegur leikur því Pétur Guðmundsson lék þarna sinn fyrsta A-landsleik og stimplaði sig inn með því að skora 34 stig í sínum fyrsta leik.

Það er ólíklegt að það nýliðamet falli einhvern tímann. Pétur var þarna aðeins 18 ára gamall en orðinn 2,17 metrar á hæð. Hann skoraði alls 106 stig í fimm leikjum Íslands á mótinu eða 21,2 stig í leik.

Ísland hefur mætt Englendingum nokkrum sinnum í æfingaleikjum frá þessum leikjum í Hempstead en engir þeirra leikja hafa verið í keppni á vegum FIBA. Það eru því liðin 37 ár frá síðasta Evrópuleik á Englandi.

Sigurður Þorvaldsson er elsti leikmaður íslenska landsliðshópsins en hann fæddist þó ekki fyrr en í nóvember 1980 eða rúmum þremur árum eftir umrædda leiki í Hempsted. Enginn íslensku strákanna var því fæddur þegar Ísland spilaði síðast Evrópuleik á Englandi

Tveir pabbar landsliðsmanna Íslands í dag voru með í þessum síðustu Evrópuleikjum Íslands á Englandi. Gunnar Þorvarðarson, faðir Loga Gunnarssonar og svo Kári Marisson, faðir Axel Kárasonar. Þeir Gunnar og Kári voru á þessum tíma liðsfélagar í Njarðvík.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Körfuknattleiksið Gaggó Vest veturinn 1958-1959. Í liðinu eru nokkrir frægir kappar sem létu að sér kveða í körfuboltanum næstu árin.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið