© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.8.2014 | 14:11 | Stefán | Landslið
Fjórir hafa sett persónulegt stigamet í fyrstu tveimur Evrópuleikjum ársins
Martin Hermannsson er einn fjögurra leikja til að setja stigamet Mynd: Axel
Íslenska körfuboltalandsliðið missti tvo öflugustu skorara sína fyrir leiki liðsins í ár (Jón Arnór Stefánsson og Jakob Örn Sigurðarson) og hefur því þurft á meira framlagi frá öðrum leikmönnum í fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppni Evrópumótsins 2015.

Ungir leikmenn liðsins hafa líka svarað kallinu og fjórir þeirra hafa sett nýtt persónulegt stigamet með A-landsliðinu í þessum tveimur leikjum við Breta og Bosníumenn. Þetta eru þeir Haukur Helgi Pálsson, Martin Hermannsson, Hörður Axel Vilhjálmsson og Elvar Már Friðiksson.

Haukur Helgi og Martin settu sín met í sigrinum á Bretum þar sem þeir voru með 46 stig saman en Hörður Axel og Elvar Már hafa aldrei skorað meira í A-landsleik en í Bosníu á sunnudagskvöldið.

Haukur Helgi Pálsson skoraði 24 stig á móti Bretum í Laugardalshöllinni en með því jafnaði hann það mesta sem hann hefur skorað í einum landsleik. Haukur Helgi hafði einnig náð að skora 24 stig á móti Rúmenum í Evrópukeppninni síðasta haust.

Martin Hermannsson bætti sitt persónulega met um heil ellefu stig þegar hann skoraði 22 stig á móti Bretum í Höllinni en fyrra metið hafði hann sett nokkrum dögum fyrr í æfingaleik í Lúxemborg. Martin hafði aldrei skorað yfir tíu stig í landsleik fyrir þetta sumar.

Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 14 stig fyrir framan troðfulla hölla í Tuzla í Bosníu á sunnudagskvöldið og bætti sitt persónulegt met um eitt stig. Hörður Axel hafði mest áður skorað 13 stig í A-landsleik en því náði hann á móti Makedóníu í æfingaleik í Kína sumarið 2013.

Elvar Már Friðriksson er að stíga sín fyrstu spor með A-landsliðinu á stóra sviðinu og hann setti nýtt persónulegt met í Bosníu með því að skora 6 stig en þetta var aðeins hans áttundi A-landsleikur. Elvar Már kom grimmur inn af bekknum og var einnig með 5 fráköst og 2 stolna bolta á 24 mínútum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Matthíasson leikmaður KFR tekur skot á körfuna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið