© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.8.2014 | 13:00 | Stefán | Landslið
Logi fyrstur til að spila 17 Evrópuleiki í Laugardalshöllinni
Logi ásamt Hannesi Jónssyni formanni KKÍ fyrir leikinn
Logi Gunnarsson setti í gærkvöldi leikjamet í Evrópuleikjum í Laugardalshöllinni þegar Ísland mætir Bretlandi í fyrsta leik liðanna í undankeppni EM 2015.

Leikurinn var 17. Evrópuleikur Loga í Laugardalshöllinni en fyrir leikinn var hann í hópi þriggja leikmanna sem hafa spilað 16 Evrópuleiki í Höllinni. Hinir í þeim hóp eru Guðmundur Bragason og Friðrik Stefánsson.

Logi hefur skorað 146 stig í þessum 16 Evrópuleikjum sínum í Höllinni sem gera 9,1 stig að meðaltali. Logi hefur ennfremur skorað 23 þrista í þessum 16 leikjum og þarf einn til viðbótar til að komast upp í annað til þriðja sætið yfir flesta þrista í Evrópuleikjum í Laugardalshöllinni.

Logi er í 5. sæti yfir flest stig í Evrópuleikjum í Laugardalshöllinni og vantar 24 stig til viðbótar til að komast upp yfir Herbert Arnarson sem situr í næsta sæti fyrir ofan hann.

Logi lék sinn fyrsta Evrópuleik í Höllinni á móti Úkraínu 22. nóvember 2000. Hann skoraði þrjú stig í þeim leik en var síðan með 29 stig á móti Slóveníu í öðrum leiknum sínum aðeins viku síðar.

Logi verður heiðraður í gærkvöldifyrir að bætast í hundrað leikja klúbbinn á dögunum en hann spilaði sinn 102. landsleik gegn Bretlandi.

Flestir Evrópuleikir í Laugardalshöllinni:
Guðmundur Bragason 16
Logi Gunnarsson 16
Friðrik Stefánsson 16
Herbert Arnarson 15
Jón Arnór Stefánsson 14
Teitur Örlygsson 14
Jón Arnar Ingvarsson 13
Guðjón Skúlason 12
Helgi Jónas Guðfinnsson 12
Jakob Örn Sigurðarson 12
Falur Harðarson 11
Hermann Hauksson 11
Hlynur Bæringsson 10
Hjörtur Harðarson 10
Páll Axel Vilbergsson 10
Helgi Már Magnússon 10
Fannar Ólafsson 10
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Pétur Guðmuindsson og Jim Dooley fyrrum landsliðsþjálfari gáfu sér tíma til myndatöku í æfingabúðum þess síðarnefnda í Smáranum í Kópavogi, líklega sumarið 2001.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið