© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.7.2014 | 20:07 | ERH
2ja stiga tap gegn Þjóðverjum hjá U18 karla
U18 karla lék sinn annan leik í riðlakeppni EM í dag er þeir mættu sterku liði Þjóðverja. Þjóðverjar höfðu 60-58 sigur í spennuleik en staðan í hálfleik var 32-28.

Íslenska liðið mætti kröftugt til leiks og skoruðu sjö fyrstu stig leiksins. Þjóðverjum virtist brugðið og strákarnir voru að leika á alls oddi. Þýska liðið er geysiöflugt og þeir sýndu styrk sinn og unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn þar sem tveir af bakvörðum þeirra voru að skjóta vel fyrir utan (hittu úr 7 af 10 þristum í fyrri hálfleiknum) sem gaf þeim forystu í hálfleiknum en þeir hafa einnig stóra stráka sem að létu okkar menn hafa vel fyrir hlutunum í baráttunni í teignum.
Íslenska liðið hóf síðari hálfleikinn ágætlega en þegar staðan var jöfn um miðjan þriðja leikhluta kom slæmur kafli og þýska liðið gerði 8 stig í röð. Þessi forysta reyndist okkar mönnum erfið þó baráttan væri vissulega til staðar. Varnarleikur okkar manna efldist og lokamínúturnar voru spennandi og það vantaði sáralítið upp á fyrir íslenska liðið þegar uppi var staðið.
Kári Jónsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig, Jón Axel Guðmundsson gerði 10 stig og tók að auki 10 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson var með 10 stig og 4 fráköst og Kristinn Pálsson gerði einnig 10 stig, tók 6 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 3 boltum. Þá var Hjálmar Stefánsson með 9 stig og 12 fráköst en hann gerði einnig vel varnarlega í teignum gegn stærri og þyngri mönnum.

Tölfræði leiksins

Strákarnir leika á morgun gegn Austurríki og sá leikur er kl 17:30 að íslenskum tíma. Austurríkismenn unnu Georgíu í fyrsta leik og töpuðu svo í kvöld gegn Ísrael. Það er því ljóst að sigur þarf að vinnast á morgun til að halda í baráttuna um tvö efstu sætin sem gefa réttinn í 8 liða úrslitin.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bakverðir íslenska kvennalandsliðsins sem tók þátt í undankeppni Evrópumótsins 2008. F.v. Hildur Sigurðardóttir, Helena Sverrisdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið