© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.7.2014 | 18:04 | ERH | Yngri landslið
Öruggt gegn Eistum í fyrsta leik hjá U18 karla
U18 ára landslið karla lék í dag fyrsta leik sinn í B deild Evrópukeppninnar í Sofia í Búlgaríu. Strákarnir eru í D riðli og voru Eistar þeirra fyrsti andstæðingur. Okkar menn voru í sjálfu sér ekki að leika illa í fyrri hálfleik, þar sem varnarleikurinn var heilt yfir sterkur en sóknarmegin var vöntun á betri skotnýtingu.

Þessi lið mættust á NM í lok maí og höfðu okkar menn þar góðan sigur rétt eins og í dag en lokatölur urðu 72-45.
Byrjunarlið íslenska liðsins var skipað þeim Kára Jónssyni, Jóni Axel Guðmundssyni, Kristni Pálssyni, Hjálmari Stefánssyni og Brynjari Magnúsi Friðrikssyni. Staðan að fyrsta leikhluta loknum var 14-9 og 10 leikmenn höfðu þegar komið við sögu.
Forystan var enn fimm stig í hálfleik (29-24) og hittnin í raun vandi íslenska liðsins. Strákarnir höfðu sem dæmi tekið átta 3ja stiga skot án þess að nokkuð færi niður en á meðan vörnin var að halda var forystan svosem alltaf til staðar.
Síðari hálfleikurinn var mun kraftmeiri. Íslenska liðið byrjaði með látum og náði 15-0 spretti um miðbik 3ja leikhluta og læstu leiknum í rauninni með þeim sprett. Allir leikmenn liðsins komu við sögu í síðari hálfleik og tíu af tólf leikmönnum komust á blað í stigaskori.
Jón Axel Guðmundsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 21 stig og tók að auki 3 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 5 boltum. Kári Jónsson kom honum næstur með 12 stig og Magnús Már Traustason gerði 10 stig.

Tölfræði leiksins

Tölfræðimolar dagsins:
- Íslenska liðið gerði 50 stig í teignum í dag gegn 14 stigum Eista
- Hraðupphlaupsstigin voru 21 gegn 8 stigum Eista
- Íslenski bekkurinn skilaði 28 stigum á meðan bekkurinn hjá Eistum skilaði 19
- Ellefu af tólf leikmönnum Íslands léku 10 mínútur eða meira og sá tólfti lék 8:57 mín

Á morgun leikur lið Íslands gegn Þjóðverjum sem virðast hreinlega sterkasta liðið á mótinu ef miðað er við úrslit úr æfingaleikjum þeirra undanfarið gegn A þjóðum og það verður því verðugt verkefni fyrir drengina. Þjóðverjar leiða með 18 stigum í fyrri hálfleik gegn Ísrael þegar þetta er skrifað en þessi tvö lið eru úr efstu styrkleikaflokkum í riðlinum.
Leikurinn á morgun hefst klukkan 18:15 að staðartíma (klukkan 15:15 heima).
Hópurinn ber fyrir kveðju heim, en þess má geta að stefnt er að því að svipmyndir úr leiknum komi á karfan.is í kvöld eða á morgun.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Keflavíkur vorið 2000. Frá vinstri: Erla Reynisdóttir, Christy Cogley, Alda Leif Jónsdóttir og Kristín Blöndal. Aftari röð frá vinstri: Kristín Þórarinsdóttir, Birna Guðmundsdóttir, Marín Rós Karlsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Anna María Sveinsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið