© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.7.2014 | 20:44 | sara
Tap gegn Bosníu
Guðlaug Björt Júlíusdóttir var valin maður leiksins að þessu sinni
Í kvöld léku Íslendingar fyrri leik sinn af tveimur í milliriðli á EM í Rúmeníu. Leikið var gegn Bosníu en lið þeirra er afar hávaxið og því ljóst fyrir leikinn að íslenska liðið þyrfti að frákasta betur en hingað til í keppninni. Það tókst en að þessu sinni voru það tapaðir boltar sem að réðu baggamuninn. Eftir nokkuð jafnan leik höfðu Bosníustúlkur sigur 76-65.


Íslensku stelpurnar byrjuðu 1. leikhluta af miklum krafti og komust í 10-6 um hann miðjan en þá hófu Bosníustúlkur að leika stífari vörn á okkar stúlkur og uppskáru margar auðveldar körfur. Slæmur kafli hjá Íslendingum varð til þess að Bosníustúlkur náðu 19-0 kafla og höfðu yfir að loknum 1. leikhluta 25-10.

Í 2. leikhluta ákvað íslenska liðið að skipta um vörn og spila svæðisvörn, það virtist virka mun betur og leikurinn jafnaðist. Bosnía hafði þó enn örugga forystu 43-31 þegar flautað var til hálfleiks.

Í 3. leikhluta héldu íslensku stelpurnar áfram að spila góða svæðisvörn og náðu að halda hávöxnu liði Bosníu í skefjum. Íslenska liðið náði að minnka muninn niður í 5 stig en Bosnía náði að slíta sig frá Íslendingum fyrir lokaleikhlutann. Staðan að loknum 3. leikhluta var 58-49.

Í lokaleikhlutanum hélt sama barátta áfram. Íslenska liðið spilaði áfram svæðisvörn og var einnig að spila ágætan sóknarleik. Munurinn á liðunum var þó alltaf 5-8 stig og innsigluðu Bosníustúlkur sér sigurinn með þriggja stiga flautukörfu 76-65, sem gefur kannski ekki alveg rétta mynd af leiknum því hann var jafn og spennandi.

Í þessum leik var allt annað sjá til íslenska liðsins en gegn Dönum. Frákastabarátta og varnarleikur voru mun betri og það gott veganesti fyrir framhaldið.

Á morgun leikur íslenska liðið sinn fimmta leik á jafnmörgum dögum. Að þessu sinni verður leikið gegn heimaliðinu frá Rúmeníu en eins og í flest öðrum leikjum íslenska liðsins verður við ramman reip að draga. Leikurinn hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma.

Maður leiksins að þessu sinni var Guðlaug Björt Júlíusdóttir sem átti algjöran stórleik.

Stigaskor:
Guðlaug Björt 24 stig (5 fráköst, 5 stoðsendingar og 8 fiskaðar villur)
Sara Rún 15 stig (10 fráköst, 6 stolna bolta)
Elsa Rún 10 stig (4 fráköst, 3 varin skot)
Sandra Lind 7 stig (7 fráköst, 2 stoðsendingar og 6 stolnir boltar)
Sólrún Inga 4 stig (6 fráköst, 3 stoðsendingar)
Margrét Ósk 3 stig
Bríet Sif 2 stig
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið Íslands sem tók þátt í Evrópukeppninni í Antalya í Tyrklandi árið 1976. Frá vinstri: Steinn Sveinsson, fararstjóri, Örn Þórisson, Fram, Birgir Thorlacius, Fram, Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, Ómar Þráinsson, Fram, Þórir Einarsson, Fram, Pétur Guðmundsson, Val, Þorvaldur Geirsson, Fram, Óskar Baldursson, Breiðabliki, Erlendur Markússon, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson, Val, Sigurjón Ingvarsson, Fram og Gunnar Gunnarsson, þjálfari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið