© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.7.2014 | 20:15 | oskaroj
Helena valin best - eini íslenski leikmaðurinn í úrvalsliðinu
Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, var valin besti leikmaður Evrópukeppni Smáþjóða sem lauk í St. Pölten í kvöld. Helena var eina íslenski leikmaðurinn í úrvalsliði mótsins.

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, afhendi Helenu verðlaunin sem voru sárabót fyrir íslenska liðið sem tapaði með sex stiga mun í úrslitaleiknum.

Helena var með 17.5 stig, 9,5 fráköst og 4,3 stoðsendingar að meðaltali í fjórum leikjum íslenska liðsins þar af 17 stig, 10 fráköst og 7,5 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum tveimur um sæti.

Helena var þriðji stigahæsti leikmaður mótsins en hún var einnig í þriðja sæti í frákösdtum og í 3. sæti í stoðsendingum. Helena nýtti líka vítin sín best af öllum.

Með Helenu í úrvalsliðinu voru þær Sigrid Koizar og Sarah Schicher frá Austurríki, Dina Ulyanova frá Aserbaídsjan og Josephine Grima frá Möltu. Sigrid Koizar reyndist íslenska liðinu afar erfið í úrslitaleiknum þar sem hún var með 32 stig, 10 stoðsendingar og 9 fráköst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bekkjarlið 5. b í Fellaskóla sigraði í fyrsta Landsbankamóti ÍR í minnibolta 1983, en mótið var milli 5. bekkja í Breiðholti. Frá vinstri, Kjartan G. Björnsson, Grétar V. Grétarsson, Hermann Hauksson, Börkur Jakobsson, Gunnar Þór Arnarson og Rúnar Þ. Guðmundsson. Fyrir aftan stendur þjálfari drengjanna og íþróttakennari, Sigvaldi Ingimundarson. Sem kunnugt er varð einn þessara drengja, Hermann Hauksson; landsliðsmaður í körfubolta.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið