© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.7.2014 | 19:10 | oskaroj
Íslensku stelpurnar mæta Skotum á föstudaginn
Helena og Thelma Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari.
Íslenska kvennalandsliðið átti ekki leik í dag í Evrópukeppni Smáþjóða en stelpurnar fylgdust vel með þegar það kom í ljós hver yrði mótherji liðsins í undanúrslitunum á föstudaginn.

Ísland mætir þá Skotum og hefst leikurinn klukkan 14.30 að íslenskum tíma. Í hinum undanúrslitaleiknum spila síðan Malta og Austurríki en sá leikur hefst klukkan 17.00. Úrslitaleikurinn fer síðan fram á laugardaginn og þangað ætlar íslenska liðið að komast.

Austurríki og Skotland spiluðu í kvöld hreinan úrslitaleik um sigur í hinum riðlinum og um leið um það að sleppa við að mæta íslenska liðinu í undanúrslitum keppninnar. Austurríki vann leikinn sannfærandi 70-45 og sendi þær skosku í leik á móti Íslandi.

Þær skosku héldu í við austurríska liðið fram eftir fyrri hálfleiknum en Austurríki vann síðustu þrjár mínútur fyrri hálfleiksins 12-7 og gerði síðan nánast út um leikinn með því að vinna þriðja leikhlutann 25-12.

Skotar höfðu fyrir leikinn unnið sigra á bæði Aserbaídsjan (+10) og Wales (+43) en áttu fá svör við sterku austurrísku liði í seinni hálfleiknum.

Öll lið eiga frídag á morgun og þá munu gestgjafarnir í St. Pölten bjóða upp á ferð um næsta nágrenni borgarinnar. Íslenska liðið æfði tvisvar í dag og fór í millitíðinni í sutta ferð til Vínarborgar. Það var því nóg að gera hjá stelpunum þótt að liðið hafi ekki spilað leik eins og hin sex liðin sem keppa í St. Pölten.

Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, meiddist í sigrinum á Gíbraltar og hún æfði ekki í dag. Helena er samt öll að koma til og verður vonandi orðin leikfær á móti Skotum á föstudaginn. Helena hefur verið í stöðugri meðferð sjúkraþjálfarans Thelmu Ragnarsdóttur og allir eru bjartsýnir á að landsliðsfyrirliðinn missi ekki úr neinn leik á þessu móti.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Guðmundur Bragason í leik gegn Luxedmbourg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið