© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.7.2014 | 12:00 | oskaroj
Hundrað stig frá bekknum í fyrstu tveimur leikjunum
Nýliðarnir Marín Laufey Davíðsdóttir og Margrét Rósa Háldanardóttir.
Íslenska kvennalandsliðið er búið að vinna tvo örugga sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum í Evrópukeppni Smáþjóða og það hefur íslenska liðið sýnt að það er með mjög breiðan og öflugan leikmannahóp.

Íslenska byrjunarliðið er vissulega mjög sterkt með þær Helenu Sverrisdóttur, Hildi Sigurðardóttur, Pálínu Gunnlaugsdóttur, Bryndísi Guðmundsdóttur og Hildi Björgu Kjartansdóttur sem er á sínu fyrsta ári sem byrjunarliðsleikmaður í landsliðinu.

Á bekknum bíða hinsvegar hinar stelpurnar tilbúnar eftir tækifærinu og þær hafa heldur betur nýtt sín tækifæri í fyrstu tveimur leikjum íslenska liðsins.

Íslenska liðið hefur alls fengið 100 stig frá bekknum í sigrinum á Möltu og Gíbraltar, 44 stig í fyrri leiknum gegn Möltu og svo 56 í leiknum á móti Gíbraltar.

Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur komið með flest stig inn af bekknum eða alls 25 eða 12,5 stig að meðaltali í leik. Gunnhildur hefur verið næststigahæst á eftir Helenu Sverrisdóttur í báðum leikjum og var í fyrsta sinn að skora yfir tíu stig í tveimur landsleikjum í röð.

Helena Sverrisdóttir er stigahæsti leikmaður íslenska liðsins í fyrstu tveimur leikjunum með 36 stig eða 18 stig að meðaltali í leik. Alls eru fjórir leikmenn búnar að skora yfir tíu srtig að meðaltali í leik en hinar eru þær Gunnhildur (12,5), Bryndís Guðmunsdóttir (12,0) og Pálína Gunnlaugsdóttir (10,5).

Nýliðarnir Marín Laufey Davíðsdóttir og Margrét Rósa Háldanardóttir hafa fylgst að en þær eru báðar með samtals fimmtán stig í sínum fyrstu mótsleikjum eða 7,5 stig að meðaltali í leik.

Stig byrjunarliðsmanna Íslands í riðlakeppninni:
Helena Sverrisdóttir 36
Bryndís Guðmundsdóttir 24
Pálína Gunnlaugsdóttir 21
Hildur Sigurðardóttir 12
Hildur Björg Kjartansdóttir 12

Stig frá bekknum hjá Íslandi í riðlakeppninni:
Gunnhildur Gunnarsdóttir 25
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15
Marín Laufey Davíðsdóttir 15
Margrét Rósa Háldanardóttir 15
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 14
María Ben Erlingsdóttir 10
Kristrún Sigurjónsdóttir 6
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Samhliða myndatökum á leikmönnum yngrilandsliða fyrir NM eru oft teknar aukamyndir af hverjum leikmanni. Ægir Þór Steinarsson sigraði keppnina í ár fyrir bestu myndina.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið