© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.7.2014 | 9:01 | oskaroj | Landslið
Ívar gerði íslensku stelpurnar að meisturum fyrir tíu árum


Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, á góðar minningar frá Evrópukeppni smáþjóða en undir hans stjórn vann íslenska liðið gull fyrir ártug.

Íslenska liðið er komið til Austurríkis þar sem liðið mætir Möltu í fyrsta leiknum í dag. Íslenska liðið stefnir á janfgóðan árangur og fyrir tíu árum.

Ívar fór þá með stelpurnar til Andorra þar sem íslenska liðið tryggði sér sigur á mótinu með 15 stiga sigri á Lúxemborg í úrslitaleiknum.

Hildur Sigurðardóttir er eini leikmaður íslenska liðsins í dag sem var einnig með fyrir tíu árum síðan. Hildur var öflug í úrslitaleiknum 31. júlí 2004 en hún var þá með 12 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar.

Atkvæðamestu leikmenn íslenska liðsins fyrir tíu árum voru samt þær Birna Valgarðsdóttir (15,8 stig í leik), Signý Hermannsdóttir (13,6 stig, 7,0 fráköst og 3,0 varin skot í leik) og Anna María Sveinsdóttir (11,2 stig og 6,6 fráköst á 21,8 mínútum í leik).

Breiddin var styrkur íslenska liðsins fyrir tíu árum en fimm leikmenn voru með yfir tíu stig að meðaltali í leik og sjötti og sjöundi leikmaður skoruðu báðar meira en 7 stig að meðaltali í leik.

Íslenska liðið vann 4 af 5 leikjum sínum í Andorra árið 2004 en eini tapleikurinn á móti Aserbaídsjan kom sem betur fer ekki í veg fyrir að íslenska liðið komst í úrslitaleikinn. Þá átti aðeins efsta liðið í riðlinum möguleika á því að komast í úrslitaleikinn en að þessu sinni fara tvö efstu liðin í íslenska riðlinum í undanúrslit.

Hæsta sigurhlutfall þjálfara í Evrópukeppni smáþjóða:
Ívar Ásgrímsson 80 prósent (4 sigrar í 5 leikjum)
Sigurður Ingimundarson 78 prósent (7 sigrar í 9 leikjum)
Torfi Magnússon 47 prósent (7 sigrar í 15 leikjum)
Jón Kr. Gíslason 40 prósent (2 sigrar í 5 leikjum)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
KR · Íslandsmeistarar í Unglingaflokki kvenna 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið