© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.7.2014 | 12:00 | oskaroj
Anna María með flesta leiki og flest stig í Evrópukeppni smáþjóða

Anna María Sveinsdóttir, fyrrum handhafi leikja- og stigamet íslenska kvennalandsliðsins, er sá leikmaður sem hefur spilað langflesta leiki í Evrópukeppni smáþjóða.

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er á leiðinni til Austurríkis þar sem íslenska liðið tekur þátt í Evrópukeppni smáþjóða sem fer að þessu sinni fram í St. Pölten. Fyrsti leikur liðsins er á mánudaginn en liðið fer á morgun sunnudag.

Anna María hefur einnig skorað langflest stig og þar hefur hún meira að segja alls 199 stiga forskot á þá næstu á listanum sem er Linda Stefánsdóttir.

Anna María var með í fimm skipti í Evrópukeppni smáþjóða og spilaði meðal annars síðasta landsleik sinn þegar íslenska landsliðið vann þessa keppni fyrir tíu árum síðan.

Anna María var með 367 stig í 29 leikjum í Evrópukeppni smáþjóða eða 12,7 stig að meðaltali í leik. Íslenska liðið vann 18 af 29 leikjum sínum á mótinu með hana innanborðs.

Flestir leikir fyrir Ísland í Evrópukeppni smáþjóða:
Anna María Sveinsdóttir 29
Guðbjörg Norðfjörð 24
Linda Stefánsdóttir 20
Birna Valgarðsdóttir 19
Kristín Blöndal 19
Erla Þorsteinsdóttir 19
Erla Reynisdóttir 15
Anna Dís Sveinbjörnsdóttir 15
Hanna B. Kjartansdóttir 15
Alda Leif Jónsdóttir 15
Helga Þorvaldsdóttir 14

Flest stig fyrir Ísland í Evrópukeppni smáþjóða:
Anna María Sveinsdóttir 367
Linda Stefánsdóttir 168
Guðbjörg Norðfjörð 164
Birna Valgarðsdóttir 160
Erla Reynisdóttir 132
Kristín Blöndal 131
Anna Dís Sveinbjörnsdóttir 120
Erla Þorsteinsdóttir 107
Björg Hafsteinsdóttir 100
Helga Þorvaldsdóttir 95
Signý Hermannsdóttir 88
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Á lokahófi KKÍ í Stapanum 2007 fengu Hafdís Helgadóttir og Valur Ingimundarson viðurkenningu fyrir störf sín í þágu körfuboltans.  Hafdís hlaut silfurmerki og Valur gullmerki.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið