© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.7.2014 | 14:00 | Stefán | Landslið
Halda stelpurnar sigurgöngunni áfram í Hólminum?
Íslensku stelpurnar voru vel studdar í gærkvöldi
Íslenska kvennalandsliðið mætir Dönum í æfingaleik í Stykkishólmi klukkan 19.15 í kvöld. Þetta er fyrsti kvennalandsleikurinn í Hólminum en strákarnir eiga góðar minningar frá spilamennsku sinni í húsinu.

Íslenska karlalandsliðið hefur spilað þrjá landsleiki í Stykkishólmi. Fyrsti leikurinn fór reyndar fram fyrir að verða 24 árum og tapaðist á móti Dönum en liðið hefur unnið tvo þá síðustu.

Íslenska karlalandsliðið spilaði tvo af sex vináttuleikjum sínum sumarið 2004 í Stykkishólmi en mótherjarnir voru Belgía og Pólland. Hólmurinn var augljóslega mikill happastaður fyrir strákana því liðið vann báða leikina sína í Stykkishólmi en tapaði aftur á móti hinum fjórum.

Íslenska liðið vann 77-76 sigur á Belgum 26. júní 2004 og 90-82 sigur á Pólverjum 7. ágúst 2004 en síðan er liðinn rétt tæpur áratugur frá landsleik í Hólminum. Hlynur Bæringsson skoraði 23 stig í báðum leikjunum í Hólminum en hann hefur hvorki fyrr né síðar skorað meira í einum landsleik.

Fyrir tíu árum áttu Hólmarar tvo leikmenn í karlalandsliðinu, þá Hlyn Bæringsson og Sigurð Þorvaldsson og sömu sögu er að segja af kvennalandsliðinu í dag. Það var hinsvegar enginn Hólmari í liðinu sem tapaði árið 1990.

Með íslenska kvennalandsliðinu í dag spila þær Hildur Sigurðardóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir sem urðu Íslandsmeistarar með Snæfellsliðinu í vor. Þriðji Hólmarinn í liðinu er Gunnhildur Gunnarsdóttir sem spilaði með Haukum í vetur en mun spila heima með Snæfelli á næsta tímabili.

Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska liðsins, er líka einn af "Hólmurunum" í hópnum því hann þjálfaði karlalið Snæfells veturinn 1992-93.

Landsleikir körfuboltalandsliða Íslands í Stykkishólmi

Karlalandsliðið
27. desember 1990: 80-90 tap fyrir Danmörku
26. júní 2004: 77-76 sigur á Belgíu
7. ágúst 2004: 90-82 sigur á Póllandi

Kvennalandsliðið
Sá fyrsti er í kvöld
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jófríður Halldórsdóttir sjúkraþjálfari á Norðurlandamóti unglingalandsliða 2007.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið