© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.9.2002 | 10:23 | bl
KFÍ mun ekki taka sæti í úrvalsdeild
Mótanefnd KKÍ mun hittast í hádeginu í dag til að ræða þá stöðu sem komin er upp í mótamálum eftir að Þór Akureyri tilkynnti að félagið hyggðist ekki taka þátt í úrvalsdeildinni í veut og óskaði eftir því að leika í 2. deild þess í stað.

KKÍ hefur leitað til Skallagríms og KFÍ til að kanna afstöðu þeirra ef til þeirra yrði leitað varðandi lausa úrvalsdeildarsætið. Afstaða Skallagríms mun verða ljós í kvöld, en stjórn KFÍ hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:

KFÍ harmar þá niðurstöðu að Þór Akureyri sjái sér ekki fært að taka þátt í úrvalsdeild í vetur. Eftir að þessar fréttir bárust okkur þá var haft samband frá KKÍ og við fengnir til þess að íhuga hvort að félagið vildi taka sæti þeirra í efstu deild.

Eftir að hafa fundað með stjórn og leikmönnum þá varð niðurstaðan sú að KFÍ ætlar sér að standa við þá langtímaáætlun sem að félagið setti á sínum tíma og halda sæti okkar í 1. deild í vetur. Unglingastarfið er að skila sér og áhuginn er mjög mikill hér á vestjörðum. Það er ætlun okkar að halda þessari útbreiðslu og uppbyggingarstarfsemi áfram, og koma góðum tökum á fjármálin í leiðinni.

KFÍ hefur verið í aðhaldsaðgerðum og tekist að ná niður skuldum félagsins eftir ýmsar erfiðar raunir í gegnum árin.

Við teljum það heillvænlegt fyrir félagið og bæjarfélagið í heild sinni að ná góðum tökum á fjármálum félagsins og koma sterkir til leiks í efstu deild þegar við erum tilbúnir til þess.

Það er von okkar að góð niðurstaða náist í þessu máli sem að verður körfuboltanum til heilla til framtíðar.

F.h KFÍ.
Guðjón M. Þorsteinsson.


Þá hefur KKÍ leitað eftir skoðun ÍA á því hvort félagið hafi áhuga á sæti í 1. deild, ef félag úr deildinni tekur sæti í úrvalsdeild. Afstaða ÍA liggur ekki fyrir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Sarajevo í Bosníu v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið