© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.6.2014 | 9:52 | Kristinn
U15 ára liðin komin til Kaupmannahafnar
U15 ára lið Íslands í stúlkna- og drengjaflokki hefja leik á Kaupmannahafnarmótinu á morgun. Liðin eru komin til Kaupmannahafnar en þau lögðu af stað í nótt.

Ísland hefur tekið þátt í mótinu frá árinu 2008. Á mótinu taka þátt landslið sem og úrvalslið borga og eða héraða.

Bæð lið eru í fjögurra liða riðli og klárast riðlakeppnin á laugardag en þá hefjast úrslit. Úrslitaleikir eru svo leiknir á sunnudag.

Mótið er sterkt og er fyrsta stig landsliðsverkefna KKÍ. Ísland hefur titil að verja í keppni U15 ára stúlkna en íslenska liðið vann þetta mót fyrir ári síðan. Drengjalið Íslands hafa fagnað sigri á mótinu tvívegis á síðustu árum.

Heimasíða mótsins er www.cph-invitational.dk.

Leikir · Ísland U15 stúlkur:
Föstudagur
11.15(Ísl. tími) Ísland-Danmörk
18.15(Ísl. tími) Ísland-Svíþjóð bláir

Laugardagur
10.15(Ísl. tími) Ísland-Finnland hvítir
Spilað um sæti seinni partinn

Leikir · Ísland U15 drengir
Föstudagur
10.45(Ísl. tími) Ísland-Værlöse
16.45(Ísl. tími) Ísland-Finnland bláir

Laugardagur
8.15(Ísl. tími) Ísland-Holland
Spilað um sæti seinni partinn

Landslið U15-stúlkna
Andrea Dögg Einarsdóttir · Keflavík/Hickory High School, USA
Anna Lóa Óskarsdóttir · Haukar · 172 cm
Ásdís Karen Halldórsdóttir · KR · 172 cm
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík · 184 cm
Birta Rós Davíðsdóttir · Keflavík · 172 cm
Hera Sóley Sölvadóttir · Njarðvík · 172 cm
Jónína Þórdís Karlsdóttir · Ármann · 168 cm
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík · 167 cm
Ragnheiður Björk Einarsdóttir · Hrunamenn · 184 cm
Þóranna Kika Hodge-Carr · Keflavík · 170 cm
Þórdís Jóna Kristjánsdóttir · Hrunamenn · 171 cm
Sædís Gunnarsdóttir · Þór Akureyri · 167 cm

Þjálfari · Margrét Sturlaugsdóttir
Aðstoðarþjálfari · Atli Geir Júlíusson

U15-drengja
Birkir Thor Björnsson · KR · 193 cm
Davíð Alexander Magnússon · Fjölnir · 181 cm
Egill Agnar Októsson · Stjarnan · 189 cm
Gabríel Sindri Möller · Njarðvík · 172 cm
Guðjón Hlynur Sigurðarson · Ármann · 184 cm
Hákon Örn Hjálmarsson · ÍR · 184 cm
Helgi Guðjónsson · Reykdælir · 176 cm
Nökkvi Már Nökkvason · Grindavík · 182 cm
Sigmar Jóhann Bjarnason · Fjölnir · 189 cm
Stefán Alexander Ljubicic · Keflavík · 188 cm
Þorbjörn Óskar Arnmundsson · Keflavík · 192 cm
Þorgeir Þorsteinsson · Reykdælir · 203 cm

Þjálfari · Ingi Þór Steinþórsson
Aðstoðarþjálfari · Viðar Örn Hafsteinsson

Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá eftirfarandi:
Ingi Þór Steinþórsson s. 860-1885
Margrét Sturlaugsdóttir s. 898-4468
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá störfum allsherjarnefndar á ársþingi KKÍ í Borgarnesi árið 1992, undir stjórn þeirra Ingvars Kristinssonar og Gísla Georgssonar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið