© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.4.2014 | 16:03 | Kristinn
Yfirlýsing stjórnar KKÍ
Yfirlýsing stjórnar KKÍ vegna ummæla Ólafs Ólafssonar eftir leik KR og Grindavíkur í úrslitum Domino´s deildar karla þann 28. apríl 2014.

Stjórn KKÍ fordæmir þau ummæli sem Ólafur Ólafsson viðhafði í beinni útsendingu eftir leik KR og Grindavíkur í úrslitum Domino´s deildar karla í gærkvöldi. Er það mat stjórnar að ummæli sem þessi skaði ímynd körfuknattleikshreyfingarinnar og að Ólafur þurfi að bera ábyrgð á þeim.

Stjórn KKÍ hefur farið yfir málið og ákveðið að kæra ummæli Ólafs til aga- og úrskurðarnefndar. Samkvæmt lögum og reglugerðum KKÍ hefur aga- og úrskurðarnefnd ein vald til þess að beita viðurlögum í málum sem þessum.

Öll ummæli sem þessi eru með öllu óviðeigandi og eiga ekki heima í körfuknattleikssamfélagi okkar. Einstaklingar þurfa að passa sig hvað þeir segja í viðtali við fjölmiðla sem og á samfélagsmiðlum og þá sérstaklega þeir aðilar sem eru fyrirmyndir barna og unglinga. Stjórn KKÍ telur að Ólafur sé maður að meiri fyrir að hafa beðist afsökunar fljótlega eftir að leik lauk í gærkvöldi. Sendi hann afsökunarbeiðni á fjölmiðla sem og birti á samfélagsmiðli. Harmaði hann orð sín og baðst afsökunar.

Aga- og úrskurðarnefnd mun því nú fjalla um málið samkvæmt reglugerð.


Stjórn KKÍ
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn í kvennaliði 20. aldarinnar hjá KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið