© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.4.2014 | 7:00 | Kristinn
Körfuboltabúðir KFÍ 2014
Hinar árlegu Körfuboltabúðir KFÍ hefjast þriðjudaginn 3. júní kl. 18:00 og þeim lýkur sunnudaginn 8. júní kl. 15:00 (hvítasunnudag).

Búðirnar eru frábær skóli fyrir áhugasama körfuboltakrakka sem fæddir eru 2003 og fyrr. Yfirþjálfari búðanna verður Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR. Með honum verða reyndir þjálfarar á borð við Arnar Guðjónsson, Borce Ilievski og Eric Olson. Fleiri góð nöfn eru væntanleg á næstu vikum. Þjálfaranámskeiðin verða sem fyrr á sínum stað í búðunum.

Þátttökugjaldið er aðeins 40.000 kr. fyrir allan búðapakkann: Æfingar,
gisting í 5 nætur og fullt fæði.

Upplýsingar um verð á einstökum þáttum búðanna er að finna á www.kfi.is. Heimavist búðanna er einungis ætluð iðkendum og þjálfurum/fararstjórum þeirra.

Tekið er við skráningum og fyrirspurnum á netfanginu kfibudir@gmail.com og einnig er hægt að skrá iðkendur rafrænt á www.kfi.is/skraning.

Gistirými á vist er takmarkað og fjöldinn í búðirnar sömuleiðis og því er snjallt að skrá iðkendur sem allra fyrst.

Skráningarfrestur er til 30. apríl.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stjörnumenn voru áberandi í uppgjöri fyrri hluta Iceland Express-deildar karla í janúar mánuði 2010. Justin Shouse var valinn besti leikmaðurinn og Teitur Örlygsson var besti þjálfarinn. Einnig var Fannar Freyr Helgason í úrvalsliðinu ásamt Justin Shouse. Stjarnan var á toppi Iceland Express-deildarinnar þegar tímabilið var hálfnað 2009-10 ásamt Njarðvík og KR.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið