© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2014 | 13:19 | Stefán | Landslið
Nýr þjálfari A-landsliðs karla
Craig Pedersen í leik með Svendborg - mynd: Linda Sörensen
Körfuknattleikssamband Íslands hefur ráðið Kanadamanninn Craig Pedersen sem þjálfara A-landsliðs karla fyrir verkefni sumarsins.

Craig er núverandi þjálfari Svendborg í Danmörku og hefur þjálfað liðið undanfarin 11 ár með góðum árangri. Þá var hann aðstoðarþjálfari danska karlalandsliðsins frá 2004 til 2009.

Hann er fæddur 1965 í Kanada og hóf ungur að leika körfuknattleik þar sem faðir hans var þjálfari. Hann lék sem atvinnumaður í Danmörku frá 1989-2003 og hóf að þjálfa strax að leikmannaferlinum loknum eða árið 2003. Hann lék með Horsens BC, Horsens IC og Skovbakken, m.a. undir stjórn Geoff Kotila, fyrrverandi þjálfara Snæfells. Þeir starfa einmitt saman í dag við Efterskolen í Nyborg, sem er skóli sem sérhæfir sig í körfuknattleik, og hafa íslensk ungmenni stundað nám þar.

Sem þjálfari hefur Craig stýrt Svendborg í úrslit dönsku deildarinnar sjö sinnum, þar af stóðu þeir einu sinni uppi sem meistarar. Liðið hefur fimm sinnum leikið til bikarúrslita og unnið þrisvar sinnum, síðast nú í janúar. Þá hefur Craig þrisvar verið kosinn þjálfari ársins í Danmörku.

KKÍ væntir mikils af samstarfinu við Craig sem þekkir vel til íslensks körfuknattleiks, ekki síst eftir samtarf við Arnar Guðjónsson, annan af aðstoðarþjálfurum landsliðsins. En Arnar er aðstoðarþjálfari Svendborg.

Aðstoðarmaður Craig með landsliðið ásamt Arnari Guðjónssyni verður Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá KR, en hann mun jafnframt þjálfa U20 ára landslið karla sem fer á Norðurlandamót í júní.

Verkefni sumarsins er fyrst og fremst undankeppni Evrópukeppninnar í ágúst þar sem Ísland verða í riðli með Bretlandi og Bosníu. Liðið mun hefja æfingar í júlí og mun liðið leika æfingaleiki í lok júlímánaðar áður en baráttan hefst 10. ágúst í Laugardalshöll þegar Bretar mæta. En það verður fyrsti leikur Íslands í undankeppni Evrópukeppninnar 2015.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá golfmóti KKÍ í Borgarnesi árið 2000.  Starfsmenn KKÍ, þeir Pétur Hrafn Sigurðsson framkvæmdastjóri KKÍ og Björn Leósson íþróttafulltrúi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið