
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 20.2.2014 | 8:50 | Kristinn | Bikarkeppni KKÍ Poweradebikarinn · 2 dagar til stefnu: Afhending miða fyrir korthafa í dag   Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu í dag fimmtudag 20. febrúar á skrifstofu KKÍ á milli 12:00 og 14:00. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli 12:00 og 14:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni hér |